Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Rekstur rannsóknainnviða - TextílLab


Númer verkefnis


2026-05

Markmið


Markmið verkefnisins er að fjölga sérhæfðum störfum, efla starfsemi á landsvísu og veita frumkvöðlum, fyrirtækjum og hönnuðum framúrskarandi þjónustu og aðstöðu. Árangur er metinn með samstarfsverkefnum, heimsóknum, nýsköpunarverkefnum og vexti á samfélagsmiðlum.

Stutt verkefnalýsing

Með verkefninu er ætlunin að viðhalda og efla þá uppbyggingu sem er til staðar í Húnabyggð frá opnun TextílLabs Textílmiðstöðvarinnar í maí 2021. Ekki hefur gengið þrátt fyrir fögur fyrirheit að ganga frá samningi um rekstur og undanfarin tvö ár; 2024 og 2025 hljóp fjárlaganefnd undir bagga með tilmælum til Alþingis um að styrkja starfsemina um 10 milljónir 2024 og 12 milljónir 2025. Erindi frá stjórn Textílmiðstöðvar til menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytis um rekstrarsamning var synjað fyrir árið 2026 en opnað fyrir umræður fyrir samning frá 2027.


Lokaafurð

Lokaafurð verkefnisins verður tryggður rekstrargrundvöllur og áframhaldandi starfsemi TextílLabs Textílmiðstöðvarinnar í Húnabyggð. Ávinningur felst í varðveislu þekkingar, eflingu nýsköpunar í textíl, atvinnusköpun og styrkingu skapandi greina á Norðurlandi vestra til framtíðar.


Framkvæmdaraðili


Textílmiðstöð Íslands

Samstarfsaðilar

Upphaf og lok verkefnis

01.03.2026 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

8.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Byggðaáætlun: Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Nýsköpunarlandið Ísland, kaflinn um umgjörð: Íslenskir frumkvöðlar og hugvitsfólk hafi aðgang að stafrænum smiðjum og standi þeim til boða aðstaða til að smíða frumgerðir og gera tilraunir með framleiðsluhugmyndir. Slík aðstaða standi sem flestum landsmönnum til boða, óháð búsetu og þar séu til staðar hæfir leiðbeinendur.

Landbúnaðarstefnan Ræktum Ísland; áhersla á aukna fullvinnslu afurða.