Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Örmyndbönd - viðtöl


Númer verkefnis


2025-02

Markmið


Að beina athygli íbúa að jákvæðum þáttum þess að búa á Norðurlandi vestra og þeim tækifærum sem hér bjóðast.

Stutt verkefnalýsing

Tekin verða upp stutt myndbönd í öllum sveitarfélögunum þar sem íbúar eru spurðir að því hvað þeim finnist best við Norðurland vestra. Myndböndum verður dreift á miðlum SSNV, bæði heimasíðu og samfélagsmiðlum (og svo deilt áfram).


Lokaafurð

Örmyndbönd sem deilt verður á samfélagsmiðlum. Myndböndunum er ætlað að auka jákvæðni og bjartsýni í landshlutanum með því að tala við fólk úr nærumhverfinu og beina athygli að jákvæðum þáttum þess að búa hér. Myndböndin verða sýnileg bæði innan landshlutans og utan og beini að honum jákvæðri athygli.


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Sveitarfélög

Upphaf og lok verkefnis

01-02-2025 - 31-12-2027

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni.

Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Byggðaáætlun, III, C.e.: Greindir verði styrkleikar einstakra svæða og unnið með þá og gætt að samspili þéttbýlis og dreifbýlis í þeim tilgangi að byggja upp fjölbreytt sjálfbær byggðarlög.

Stefna í geðheilbrigðismálum um geðrækt og forvarnir