Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Nýsköpun á Norðurlandi
Númer verkefnis
2025-09
Markmið
Stutt verkefnalýsing
Lokaafurð
Samstarf stuðningskerfis nýsköpunar á landsbyggðinni er fest í sessi sem tryggir aukin gæði fyrir frumkvöðla.
Sameiginlegur viðskiptahraðall með öðrum landshlutasamtökum.
Millilandahraðall með Færeyjum og Noregi.
Regluleg lausnamót í landshlutanum
Nýsköpunarumhverfið á Norðurlandi vestra eflist og styður frumkvöðla, sem leiðir til aukinnar fjölbreytni í atvinnulífi og betri afkomumöguleikum fyrirtækja á svæðinu.
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
SSNE og önnur landshlutasamtök, Eimur, Drift EA, sérhæfðir ráðgjafar, stofnanir, ráðuneyti, Hugskotið Færeyjum, Kupa Noregi.
Upphaf og lok verkefnis
01.02.2025 – 31.12.2026
Framlag úr sóknaráætlun
5.000.000 kr.
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar, 10. og 12. gr.: Áhersla á að styðja við og efla nýsköpun t.d. til að auka fjölbreytileika atvinnulífs, efla landbúnað, heilbrigðisþjónustu og menntamál.
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Nýsköpunarlandið Ísland.
Byggðaáætlun: Nýsköpunarhæfni samfélaga og áhersla á frumkvöðlastarfsemi og græn störf verði aukin um allt land með áherslu á að styrkja stoðkerfi og innviði nýsköpunar, stafræna þróun, þekkingaruppbyggingu og greiðara aðgengi að mörkuðum og fjármagni.