Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Mótun, innleiðing og eftirfylgni samskiptastefnu fyrir svæðið
Númer verkefnis
2025-01
Markmið
Að íbúar séu sammála um fyrir hvað svæðið stendur og að samskipti byggist á jákvæðni og bjartsýni.
Stutt verkefnalýsing
Verkefnið felur í sér að móta heildstæða samskiptastefnu fyrir landshlutann með það að markmiði að styrkja ímynd hans, bæta upplýsingaflæði og auka samvinnu við hagsmunaaðila. Stefnan mun byggja á sérkennum landshlutans og þörfum hans, með áherslu á gagnsæi, skýr samskipti og virkni. Helstu skref verkefnisins eru: skilgreining markhópa og lykilskilaboða, val á hentugum miðlum og samskiptaaðferðum og þróun mælanlegra markmiða. Samráð við íbúa, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila verður lykilatriði til að tryggja þátttöku og stuðning. Stefnt er að því að efla samkennd meðal íbúa. Heimsóknir í grunnskóla á svæðinu til að ræða um jákvæðar samskiptavenjur. Verkefnið stuðlar að markvissari samskiptum og eflir sjálfbæran vöxt landshlutans til framtíðar.
Lokaafurð
Samskiptastefna sem sýnileg er á vinnustöðum sveitarfélaga í landshlutanum og víðar. Hægt verður að vísa í hana í samskiptum og nota á uppbyggilegan hátt. Samstaða og samkennd íbúa aukist, sem og jákvæðni og bjartsýni. Samskipti ungra sem aldinna, bæði innan svæðis og utan, verði jákvæð og uppbyggileg
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
Sveitarfélög og hagaðilar
Upphaf og lok verkefnis
01-02-2025 - 31-12-2027
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni.
Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Byggðaáætlun, III, C.e.: Greindir verði styrkleikar einstakra svæða og unnið með þá og gætt að samspili þéttbýlis og dreifbýlis í þeim tilgangi að byggja upp fjölbreytt sjálfbær byggðarlög. Stefna í geðheilbrigðismálum um geðrækt og forvarnir.