Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Matvælasvæðið Norðurland vestra
Númer verkefnis
202002
Markmið
Að stuðla að aukinni fullvinnslu afurða á Norðurlandi vestra.
Stutt verkefnalýsing
Áfram verður haldið að auka þekkingu bænda á heimavinnslu afurða, vöruþróun, markaðssetningu og sölu afurða með námskeiðum og annars konar aðstoð við framangreinda þætti. Sérstök áhersla á aðstoð við sölu, t.d. með aðgengi að sölubíl og heimasíðu Vörusmiðjunnar á Skagaströnd.
Lokaafurð
Samantekt um verkefnið í skýrsluformi. Ávinningur samfélagsins felst í aukinni verðmætasköpun með fullvinnslu afurða og bætt aðgengi að vörum framleiddum í héraði. Styrkir jafnframt stöðu landbúnaðar á svæðinu.
Árangursmælikvarðar
Fjöldi þátttakenda á þeim námskeiðum sem boðið er upp á. Fjöldi þeirra býla sem hefur framleiðslu á vörum úr eigin hráefni. Aukin sala á afurðum beint frá býli. Aukin sala á vörum í sölubíl og heimasíðu Vörusmiðjunnar
Framkvæmdaraðili
SSNV, Farskóli Norðurlands vestra, Vörusmiðjan Skagaströnd.
Samstarfsaðilar
Félög sauðfjárbænda á Norðurlandi vestra, Matarauður Íslands.
Upphaf og lok verkefnis
01-04-2020 - 31-12-2025
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Ein af megináherslum í Sóknaráætlun Norðurlands vestra í málaflokknum Atvinnuþróun og nýsköpun er fullvinnsla afurða. Einnig er þar lögð áhersla á að fjölga vaxtarbroddum og styrkja grunnstoðir í atvinnulífinu, þ.m.t. landbúnaði og sjávarútvegi. Verkefnið samræmist þessari áherslu og er til þess fallið að mæta þeim markmiðum sóknaráætlunar sem miða að fjölgun sprotafyrirtækja, fjölgun atvinnutækifæra, hækkunar meðallauna sem og fjölgunar íbúa.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Rík tengsl við Byggðaáætlun 2018-2024. Í kafla 2 um markmið, áherslur og mælikvarða þar sem segir m.a. að markmið stjórnvalda séu að stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Einnig í sama kafla (lið B.k.) þar sem segir: Stuðlað verði að aukinni fullvinnslu afurða í héraði. Einnig eru sterk tengsl við sáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf. M.a. með áherslu á fæðuöryggi með eflingu innlendrar landbúnaðarframleiðslu. Einnig þar sem segir að ýta þurfi undir framtak og frumkvæði bænda með fræðslu, ráðgjöf, þróun og nýsköpun.