Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Markaðssetning landshlutans
Númer verkefnis
2025-04
Markmið
Að laða að nýja íbúa með því að varpa ljósi á kosti þess að búa í landshlutanum ásamt því að styrkja jákvæða íbúaþróun og efla stolt íbúa gagnvart svæðinu.
Stutt verkefnalýsing
Markmið verkefnisins er að efla ímynd Norðurlands vestra og stuðla að jákvæðri íbúaþróun með markvissri markaðssetningu. Í verkefninu verður unnið með sveitarfélögum, fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum til að draga fram sérstöðu svæðisins sem leggur áherslu á lífsgæði, sterka samfélagsgerð, frábær búsetuskilyrði og einstaka náttúru. Verkefnið felur í sér: Greiningu á styrkleikum svæðisins og þróun lykilskilaboða sem höfða til væntanlegra íbúa. Sköpun og miðlun markaðsefnis, s.s. mynda, myndbanda og söguefnis, til notkunar á samfélagsmiðlum, vefsíðum og öðrum miðlum. Markvissa kynningu í samstarfi við sveitarfélög og fyrirtæki með áherslu á að ná til fjölbreytts hóps einstaklinga og fjölskyldna. Mat á árangri með reglulegri greiningu á íbúaþróun. Verkefnið miðar að því að tryggja sjálfbæra og jákvæða þróun á Norðurlandi vestra og styrkja samfélagið til framtíðar. Það mun einnig leggja grunn að lengri tíma stefnu í íbúafjölgun og ímyndarsköpun svæðisins.
Lokaafurð
Lokaafurð verkefnisins verður kynningarefni sem eflir ímynd Norðurlands vestra og laðar að nýja íbúa. Ávinningur samfélagsins felst í íbúafjölgun, sterkari innviðum og atvinnuþróun, bættri ímynd og samheldni innan landshlutans.
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
Sveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu
Upphaf og lok verkefnis
01-02-2025 - 31-12-2027
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni.
Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Byggðaáætlun: Byggðaáætlun miðar að því að efla jafnvægi í byggðaþróun um allt land, með áherslu á búsetuþróun, atvinnulíf og lífsgæði. Verkefnið styður markmið um að styrkja landsbyggðina sem eftirsóknarverðan búsetukost.