Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Hjartað í Húnaþingi


Númer verkefnis


2026-02

Markmið


Verkefnið byggir á fjölbreytni, nýsköpun og eflingu samfélagsins með aukinni þjónustu og öflugra menningarlífi. Markmiðið er að auka ánægju íbúa, styrkja samfélagstengsl og efla sveitarfélagið sem aðlaðandi búsetukost með samnýtingu aðstöðu og virkri þátttöku íbúa.

Stutt verkefnalýsing

Verkefnið Hjartað í Húnaþingi gengur út á þróun og uppsetningu samfélagsmiðstöðvar í anda Oodi bókasafnsins/samfélagsmiðstöðinnar í Helsinki þar sem saman kemur ýmiskonar samfélagsleg þjónusta auk hefðbundis viðburðastarfs og aðstöðu til fundahalda sem þekkist í félagsheimilum í dag. Í húsinu hefur verið m.a. nefnt að koma upp aðstöðu fyrir starf fyrir foreldra ungra barna, ungmennastarf ýmiskonar, félagsmiðstöðina Órion og ekki síst aðstöðu fyrir ungmenni sem standa höllum fæti sem og fyrir lengda viðveru fyrir nemendur með fötlun. Jafnvel mæti skoða að nýta aðstöðuna fyrir Iðju hæfingarstöð sem starfandi er á Hvammstanga. Félagsstarf eldri borgara er þegar komið inn í húsið ásamt nokkrum félagasamtökum sem þar hafa aðstöðu til fundahalda án endurgjalds.

Nánari upplýsingar um verkefnið í greinargerð.


Lokaafurð

Lokaafurð verkefnisins er endurbætt og virkt samfélags- og menningarhús sem hýsir fjölbreytta starfsemi og bæjarviðburði. Ávinningur samfélagsins er aukin þátttaka íbúa, sterkari samfélagstengsl, minna félagslegt einangrun og aukin ánægja með þjónustu og menningarlíf í sveitarfélaginu.


Framkvæmdaraðili


Húnaþing vestra

Samstarfsaðilar

Upphaf og lok verkefnis

01.03.2026 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

14.033.762 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni

Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Byggðaáætlun: Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf, um jafnvægi í búsetu og eflingu landsbyggðarinnar, Menningarstefnu Íslands um aukið aðgengi að menningu og virkni samfélaga, auk Heilsueflandi samfélagsstefnu með áherslu á félagslega velferð og þátttöku íbúa.