Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Hafnarhúsið Gestamiðstöð
Númer verkefnis
2026-06
Markmið
Markmið verkefnisins er að bjarga sögulegu húsi frá eyðileggingu með viðgerðum og þakskiptum, ljúka fullnaðarhönnun og framkvæmdum og umbreyta því í gestamiðstöð sem styrkir menningararf, skapar atvinnu og stuðlar að framþróun landshlutans.
Stutt verkefnalýsing
Hafnarhúsið verður ný gestamiðstöð Skagastrandar. Mikil þörf er á almenningssalernum og aðstöðu fyrir ferðamenn í landshlutanum. Auk salerna verður í húsinu upplýsingamiðstöð, sjóminjasýning, kaffisala og aðstaða fyrir ferðaþjónustuaðila. Hafnarhúsið verður mætingarstaður fyrir hópferðir á sjó og landi; fyrsta stopp ferðamanna á Skagaströnd og á Norðurstrandarleið. Þessi fyrsti fasi uppbyggingar Hafnarhússins felur í sér að skipt verði um þakið á húsinu en ráðast þarf síðan í fullnaðarhönnun byggingar og lóðar.
Lokaafurð
Lokaafurð verkefnisins verður endurnýjað Hafnarhús á Skagaströnd með nýju þaki sem fyrsta skref að fullbúinni gestamiðstöð. Ávinningur felst í bættri þjónustu við ferðamenn, aukinni aðdráttarafli svæðisins og sterkari innviðum fyrir ferðaþjónustu og mannlíf á Norðurlandi vestra.
Framkvæmdaraðili
Skagaströnd
Samstarfsaðilar
Upphaf og lok verkefnis
01.03.2026 – 31.12.2026
Framlag úr sóknaráætlun
14.033.762 kr.
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.
Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Byggðaáætlun: Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.
Velkomin, Ferðamálastefna og aðgerðir til ársins 2030, Upplifun gesta þar sem lögð er áhersla á að þróa áfangastaði með áherslu á staðbundna sérstöðu og sjálfbærni.