Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Fiðringur á Norðurlandi


Númer verkefnis


2026-04

Markmið


Fiðringur eflir sköpun, samvinnu og lýðræðishugsun ungmenna með því að skapa vettvang fyrir frumsköpun á stóru sviði. Verkefnið tryggir jafnt aðgengi að listsköpun á landsbyggðinni og er metið eftir þátttöku, endurgjöf og stemningu á keppniskvöldi.

Stutt verkefnalýsing

Fiðringur á Norðurlandi hefur verið haldinn í fimm ár og í fyrra tók í fyrsta sinn þátt skóli af SSNV-svæðinu – Grunnskóli Húnaþings vestra sem bar sigur úr býtum. Fyrir Fiðring 2026 eru nú tveir skólar af svæðinu skráðir til leiks; sigurskólinn frá 2025 og Varmahlíðarskóli, og verkefnið hefur verið kynnt víðar með von um frekari þátttöku næstu ár.

SSNE hefur hingað til fjármagnað verkefnið sem áhersluverkefni, en undanfarin ár hefur verið samtal við fulltrúa SSNV um þátttöku þeirra, enda um mikilvægt menningar- og skólaþróunarverkefni að ræða. Fiðringur er hæfileikakeppni grunnskóla, sambærileg Skrekk í Reykjavík, þar sem nemendur í 8.–10. bekk fá skipulagt svigrúm í stundatöflu til að skapa og æfa atriði með stuðningi leiðbeinanda.

Skólar greiða þátttökugjald og taka virkan þátt í öllum undirbúningi, þar á meðal hljóði, lýsingu og sviðsvinnu sem nemendur sjálfir sinna. Keppnin fer fram í Hofi á Akureyri í maí og ef þátttaka er mikil eru haldin undankvöld. Að öðrum kosti er boðið upp á sameiginlegan „Hofs-dag“ þar sem liðin kynnast sviðinu og hvort öðru.

Samhliða keppninni taka nemendur þátt í hönnunarkeppni baksviðspassa og velja Fiðringslag ársins sem flutt er á keppniskvöldi. Verkefnið hefur vakið mikla ánægju meðal skólastjórnenda, starfsfólks og nemenda og reynslan sýnir að það styrkir sköpun, samvinnu og sjálfstraust ungmenna á landsbyggðinni.


Lokaafurð

Lokaafurð verkefnisins er sameiginleg sviðslistahátíð þar sem grunnskólanemar flytja eigin frumsköpun á stóru leikhússviði með faglegri umgjörð. Afurðin felur einnig í sér styrkta samvinnuhæfni, skapandi færni og aukið sjálfstraust þátttakenda.


Framkvæmdaraðili


María Pálsdóttir og Hera Jónsdóttir

Samstarfsaðilar

Menningarfélag Akureyrar, Grunnskólar á Norðurlandi

Upphaf og lok verkefnis

01.03.2026 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

1.500.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni

Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Byggðaáætlun: Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Menningarstefnu Íslands um aukið aðgengi að menningu og virkni samfélaga.