Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Ferðaþjónusta í sókn - Viðburðir


Númer verkefnis


2025-08

Markmið


Að svæðið marki sér sérstöðu með viðburðahaldi tengdu útivist og ævintýrum.

Stutt verkefnalýsing

Að sköpuð verði umgjörð um t.d. utanvegahlaup, hjólreiðakeppnir, yoga-helgar/-vikur með tilheyrandi markaðssetningu og samstarfi aðila í ferðaþjónustu og tengdum greinum.

Árvissir viðburðir í landshlutanum þróaðir og festir í sessi með samstarfi og markvissri markaðssetningu. Norðurland vestra verður kynnt í gegnum viðburði víðsvegar um landshlutann, hjólreiðakeppnir, hlaup og fleira sem dregur fólk í landshlutann með það markmið að lengja ferðamannatímabilið.


Lokaafurð

Útivistar- og ævintýrapakkar á Norðurlandi vestra. Árvissir viðburðir sem ferðaþjónustuaðilar í samvinnu við SSNV standa að og draga að fjölda ferðmanna.

Verkefnið festi í sessi viðburði tengdum við ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Ferðaþjónustuaðilar á svæðinu, fyrirtæki á svæðinu

Upphaf og lok verkefnis

01.02.2025 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

4.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Velkomin, Ferðamálastefna og aðgerðir til ársins 2030, Upplifun gesta, samfélag og menning.

Lögð er áhersla á að þróa viðburði með áherslu á staðbundna sérstöðu, sjálfbærni og upplifun gesta. Verkefnið styður við þessa stefnu með því að skapa einstaka og sjálfbæra viðburði.

Í stefnunni er einnig talað um mikilvægi þess að lengja ferðamannatímabilið og jafna dreifingu ferðamanna um landið, sem verkefnið þjónar með því að þróa viðburði og upplifanir sem laða ferðamenn að utan háannatíma.