Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Ferðaþjónusta í sókn - Ævintýraferðaþjónusta


Númer verkefnis


2025-06

Markmið


Að tengja saman aðila í ferðaþjónustu til að útbúa sameiginlegar heildarlausnir og fjölbreyttar pakkaferðir.

Stutt verkefnalýsing

Verkefnið hefur það markmið að styðja við vöruþróun með áherslu á ævintýraferðamennsku, að búnir verði til fjölbreyttir ferðapakkar til að fá ferðamenn til að dvelja lengur í landshlutanum. Byggt verður á þeim möguleikum sem hér eru til útivistar allt árið um kring og nýir þróaðir með auknu samstarfi.

Aðkoma SSNV snýst um verkefnastjórn, fjármögnun markaðssetningar og tengingu við ferðaskrifstofur


Lokaafurð

Fjölbreyttir ferðapakkar sem bjóðast söluaðilum ferðaþjónustu þar sem búið er að spyrða saman upplifanir og þjónustu sem byggja á ævintýraferðamennsku. Þannig festist ferðaþjónusta hér í sessi sem heilsársatvinnugrein og ferðamenn dvelja hér lengur. Aukið samstarf aðila í ferðaþjónustu skilar ávinningi fyrir landshlutann allan og styður við uppbyggingu hótela


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Fyrirtæki og ferðaþjónustuaðilar á svæðinu

Upphaf og lok verkefnis

01-02-2025 - 31-12-2027

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Velkomin. Ferðamálastefna og aðgerðir til ársins 2030. Upplifun gesta. Lögð er áhersla á að þróa vöru með áherslu á staðbundna sérstöðu og upplifun gesta. Í stefnunni er einnig talað um mikilvægi þess að lengja ferðamannatímabilið og jafna dreifingu ferðamanna um landið, sem verkefnið þjónar með því að þróa vöru sem laðar ferðamenn að utan háannatíma.