Áhersluverkefni 2025 -2026
Heiti verkefnis
Ferðaþjónusta í sókn - Söguferðaþjónusta
Númer verkefnis
2025-07
Markmið
Að sagnaarfur svæðisins nýtist aðilum í ferðaþjónustu sér til framdráttar
Stutt verkefnalýsing
Verkefnið hefur það markmiði að styðja við vöruþróun með áherslu á sagnaarf svæðisins og ferðaþjónustuaðilar nýti sér á markvissan hátt, að búnir verði til fjölbreyttir ferðapakkar til að fá ferðamenn til að dvelja lengur í landshlutanum. Verkefnið miðar að því að þróa, kynna og styrkja ferðaþjónustu sem byggir á staðbundinni sögu og menningu. Með aukinni áherslu á sjálfbæra ferðamennsku og einstakar upplifanir verður sögulegur arfur svæðisins nýttur sem aðdráttarafl.
Lokaafurð
Tilbúnir sölupakkar sem byggja á sögum svæðis og markaðsefni þeim tengdum til að ferðamenn dvelji lengur í landshlutanum. Ferðir um söguslóðir þar sem sagnaarfur landshlutans er nýttur til að draga að ferðamenn
Framkvæmdaraðili
SSNV
Samstarfsaðilar
Upphaf og lok verkefnis
01-02-2025 - 31-12-2027
Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar
Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.
Tengsl við aðrar opinberar áætlanir
Velkomin, Ferðamálastefna og aðgerðir til ársins 2030, Upplifun gesta, samfélag og menning. Lögð er áhersla á að þróa vöru með áherslu á staðbundna sérstöðu, sjálfbærni og upplifun gesta. Verkefnið styður við þessa stefnu með því að nýta menningararf og sögu til að skapa einstakar og sjálfbærar ferðamannaafurðir. Í stefnunni er einnig talað um mikilvægi þess að lengja ferðamannatímabilið og jafna dreifingu ferðamanna um landið, sem verkefnið þjónar með því að þróa