Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall


Númer verkefnis


2026-03

Markmið


Að efla samvinnu, félagslega virkni og lífsgæði íbúa Norðurlands vestra með sameiginlegri barnamenningarhátíð sem tengir kynslóðir, styrkir menningarlíf landshlutans og skapar jákvæða upplifun fyrir börn og fjölskyldur.

Stutt verkefnalýsing

Börnum á Norðurlandi vestra, ungmennum og fjölskyldum þeirra verði boðið upp á fjölbreytta menningarviðburði undir merkjum Skúnaskralls (barnamenningarhátíð sem haldin var árið 2022).

Nafn hátíðarinnar, SKÚNASKRALL, er skírskotun í íbúa svæðisins (SK = Skagafjörður og ÚNA = Húnavatnssýslur) og þá hugmynd að skralla eitthvað skemmtilegt saman. Meginreglan er að þátttakendur geti notið allra viðburða sér að kostnaðarlausu.

Um verði að ræða tveggja vikna afmarkað tímabil frá 21. október til 4. nóvember þar sem áhersla verði lögð á að samnýta viðburði í öllum landshlutanum og vekja athygli á því sem nú þegar er gert á svæðinu. Leitað verði eftir samstarfi við skóla og stofnanir til að fá sem mesta virkni og fjölbreyttast framboð. Ef fjármunum verður veitt í verkefnið verður t.d. hægt að kaupa að atriði og greiða fyrir akstur (og sjá fyrir akstri) innan svæðis.

Lögð verði áhersla á sem flestar hliðar menningar og sköpunar með börnum og fyrir börnin; leiklist, myndlist, söng, hönnun, ljósmyndun, kvikmyndagerð, ritlist o.fl. - allt sem hægt er að hugsa sér að hvetji til virkni, þátttöku og skemmtunar.


Lokaafurð

Lokaafurð verkefnisins er tveggja vikna barnamenningarhátíð um allt Norðurland vestra með fjölbreyttum viðburðum fyrir börn og fjölskyldur. Ávinningur samfélagsins er aukin samvinna sveitarfélaga, sterkari menningarvitund, félagsleg virkni og bætt lífsgæði íbúa.


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Listafólk og sveitarfélög á Norðurlandi vestra.

Upphaf og lok verkefnis

01.03.2026 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

2.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni

Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Byggðaáætlun: Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf, um jafnvægi í búsetu og eflingu landsbyggðarinnar, Menningarstefnu Íslands um aukið aðgengi að menningu og virkni samfélaga, auk Heilsueflandi samfélagsstefnu með áherslu á félagslega velferð og þátttöku íbúa.