Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Bæjarhátíðir


Númer verkefnis


2026-01

Markmið


Markmiðið með verkefninu er að styrkja bæjarhátíðir á Norðurlandi vestra sem drifkraft menningar, samfélagstengsla og ferðaþjónustu. Verkefnið mun greina tækifæri til uppbyggingar, aukinnar aðsóknar og sjálfbærs rekstrar hátíða á svæðinu.

Stutt verkefnalýsing

Verkefnið miðar að því að styrkja bæjarhátíðir á Norðurlandi vestra með beinni fjárfestingu í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd þeirra. Markmiðið er að bæta umgjörð hátíðanna og tryggja stöðugleika í rekstri þeirra.

Fjármunum verkefnisins verður ráðstafað í lykilþætti skipulags, svo sem verkefnastjórnun

Áhersla verður lögð á að styðja við fjölbreyttar hátíðir sem endurspegla menningu og sérstöðu svæðisins og efla þannig aðdráttarafl Norðurlands vestra fyrir íbúa og gesti. Með auknum gæðum og betra skipulagi er stefnt að meiri aðsókn, lengri dvalartíma ferðamanna og auknum tekjum í nærumhverfi hátíðanna.

Verkefnið mun þannig stuðla að öflugra menningarlífi, sterkari samfélögum og sjálfbærri ferðaþjónustu á svæðinu.


Lokaafurð

Lokaafurð verkefnisins eru vel skipulagðar og faglega unnar bæjarhátíðir með skýrar verk- og kostnaðaráætlanir. Ávinningur samfélagsins felst í auknu menningarlífi, sterkari samfélagstengslum, meiri aðsókn gesta og auknum efnahagslegum umsvifum á svæðinu.


Framkvæmdaraðili


Rekstraraðilar bæjarhátíða á Norðurlandi vestra

Samstarfsaðilar

Upphaf og lok verkefnis

01.03.2026 – 31.12.2026

Framlag úr sóknaráætlun

5.000.000 kr.

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Lykilmálaflokkur 01 – Samvinna, jákvæðni og bjartsýni

Lykilmálaflokkur 02 – Góður staður til að búa á.

Lykilmálaflokkur 03 – Aukin nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Byggðaáætlun: Sérstök áhersla verði lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Velkomin, Ferðamálastefna og aðgerðir til ársins 2030, Upplifun gesta þar sem lögð er áhersla á að þróa áfangastaði með áherslu á staðbundna sérstöðu og sjálfbærni.