Áhersluverkefni 2025 -2026

Heiti verkefnis

Auknar fjárfestingar á Norðurlandi vestra


Númer verkefnis


202001

Markmið


Efling fjárfestinga á Norðurlandi vestra og fjölgun starfa.

Stutt verkefnalýsing

Verkefnið lýtur að því að vinna náið með sveitarfélögunum á svæðinu með það að markmiði að skapa fleiri störf og auka fjárfestingar á svæðinu. Verkefnið hefur verið áhersluverkefni undanfarinna ára og er nú komið vel á veg. Þétt og góð vinna hefur átt sér stað með hverju og einu sveitarfélagi um ákvörðun verkefna sem sett verða í forgang. Nú hefst markviss vinna við að sækja og efla þau tækifæri sem sveitastjórnir hafa sett sér.


Lokaafurð

Ávinningur samfélagsins er fyrst og fremst fjölgun starfa og fjölbreyttari atvinnutækifæri ef verkefnið gengur að óskum.


Árangursmælikvarðar: Fjöldi nýrra fjárfestinga í atvinnuuppbyggingu í landshlutanum með beinni aðkomu verkefnisstjóra og annarra starfsmanna samtakanna.


Framkvæmdaraðili


SSNV

Samstarfsaðilar

Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið, sveitarfélögin á starfssvæðinu, fyrirtæki á starfssvæðinu, Íslandsstofa, Landsvirkjun, Landsnet og fleiri stofnanir

Upphaf og lok verkefnis

01-01-2023 - 31-12-2025

Tengsl við meginmarkmið sóknaráætlunar


Ein af megináherslum í Sóknaráætlun Norðurlands vestra í málaflokknum Atvinnuþróun og nýsköpun er að fjölga vaxtarbroddum og styrkja grunnstoðir í atvinnulífinu, s.s. í ferðaþjónustu, nýsköpun, vöruþróun, landbúnaði og sjávarútvegi. Verkefnið samræmist þessari áherslu og er til þess fallið að mæta þeim markmiðum sóknaráætlunar sem miða að fjölgun sprotafyrirtækja, fjölgun atvinnutækifæra, hækkunar meðallauna sem og fjölgunar íbúa.

Tengsl við aðrar opinberar áætlanir


Rík tengsl við byggðaáætlun 2018-2024 m.a. þar sem segir í kaflanum um framtíðarsýn og viðfangsefni: Í öllum landshlutum verði blómlegar byggðir og öflugir byggðakjarnar þar sem stuðlað verði að bættum lífskjörum landsmanna með sem jöfnustu aðg