14. ágúst 2026

Verkefnisstjóri barna-, ungmenna- og frístundastarfs

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst.

Húnaþing vestra auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf verkefnastjóra barna-, ungmenna- og frístundastarfs í nýrri samfélagsmiðstöð sveitarfélagsins.

Um er að ræða nýtt 100% starf í samfélagsmiðstöð Húnaþings vestra í Félagsheimilinu Hvammstanga. Starfið felur í sér faglega ábyrgð á skipulagi og framkvæmd frístundastarfs, félagsmiðstöðvarstarfs, klúbbastarfs, Krakkasveiflu og lengdrar viðveru.

Leitað er að einstaklingi sem hefur ríkan áhuga á starfi með börnum og ungmennum, góða samskiptahæfni og metnað til að byggja upp fjölbreytt, öruggt og hvetjandi frístunda- og félagsstarf í Húnaþingi vestra.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á skipulagi, framkvæmd frístundastarfs, félagsmiðstöðvarstarfs, klúbbastarfs, Krakkasveiflu og lengdrar viðveru.
  • Hefur faglega yfirsýn yfir starf með börnum og ungmennum, þátttöku þeirra, öryggi, virkni og tengingu við skóla, farsældarteymi, íþróttafélög og aðra aðila.
  • Sinnir daglegu starfi með börnum og ungmennum og stýrir störfum/tímavinnu í frístund og félagsmiðstöð.
  • Ýmis störf í samfélagsmiðstöð, svo sem samskipti við leigutaka, uppröðun og undirbúningur leigu.


Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun sem nýtist í starfi.

Reynsla af frístundastarfi, félagsmiðstöðvarstarfi, forvarnarstarfi eða verkefnastjórnun er kostur.

  • Góð hæfni í samskiptum við börn, ungmenni og foreldra.
  • Hæfni til að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi umhverfi fyrir börn og ungmenni.
  • Frumkvæði, ábyrgðarkennd og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð samstarfshæfni og vilji til teymisvinnu.
  • Sveigjanleiki varðandi vinnutíma, þar sem starfsemi getur farið fram síðdegis, á kvöldin og um helgar eftir atvikum.
  • Hreint sakavottorð og óflekkað mannorð.


Um nokkurt skeið hefur verið unnið að uppsetningu samfélagsmiðstöðvar í Félagsheimilinu Hvammstanga. Um er að ræða spennandi verkefni sem miðar að því að stuðla að virkni íbúa á öllum aldri og efla starfsemi í miðstöðinni.
Við leitum að einstaklingum sem eru tilbúnir til að vinna fjölbreytt verkefni og vera hluti af nýju teymi starfsmanna samfélagsmiðstöðvarinnar.

Laun og starfskjör eru í samræmi við kjarasamning viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Í samræmi við Jafnréttisstefnu Húnaþings vestra eru einstaklingar af öllum kynjum hvött til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið hér.