3. september 2026

Verkefnastjóri í Skólabúðum UMFÍ

Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði, sem starfræktar eru af UMFÍ, óska eftir að ráða metnaðarfullan og skipulagðan verkefnastjóra til starfa.


Verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og samskiptum við skóla vegna komu hópa, hefur umsjón með dagskrá búðanna og leigu til annarra hópa og gætir þess að aðstaða og öryggi séu í lagi fyrir starfsemina. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf sem reynir á skipulagshæfni, frumkvæði og góða samskiptahæfni.


Helstu verkefni og ábyrgð

•    Öll samskipti við kennara þeirra hópa sem koma í Skólabúðirnar.

•    Skipulag og röðun skóla fyrir næsta skólaár, þ.m.t. útsending og móttaka umsóknarforma.

•    Yfirumsjón með sumar og helgarleigu, þ.m.t. bókanir og vaktaskipulag starfsfólks.

•    Umsjón með tímum í dagskrá, í samstarfi við samstarfsfólk og yfirmann.

•    Eftirlit með því að hús og sundlaug séu í lagi áður en hópar koma á staðinn.

•    Árleg skýrslugjöf um starfsemi Skólabúðanna.


Menntunar- og hæfniskröfur

•    Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnunar, verkefnisstjórnunar, uppeldis-, félags- eða tómstundastarfa.

•    Reynsla af skipulagsvinnu og verkefnastjórnun er æskileg.

•    Leiðtogahæfni og umbótamiðuð hugsun

•    Jákvætt hugarfar og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu

•    Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að taka ákvarðanir.

•    Skipulagshæfni og nákvæmni, sérstaklega við röðun skóla og vaktaplön.

•    Frumkvæði til að afla sér þekkingar og miðla henni áfram til samstarfsfólks.


Umsóknir

Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1.janúar 2027.

Sótt er um hér


Nánari upplýsingar veita:

Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skólabúða UMFÍ

Sími: 861 3379

Netfang: siggi@umfi.is


Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ

Netfang: audur@umfi.is

Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta trúnaðar gætt.


Skólabúðirnar að Reykjum eru reknar af UMFÍ og taka árlega á móti fjölda skólahópa af öllu landinu. Markmið starfseminnar er að efla félagsþroska, sjálfstæði og samvinnu nemenda í gegnum fjölbreytta dagskrá og samveru utan hefðbundins skólaumhverfis.