7. september 2026

Starfsmaður í stuðnings- og stoðþjónustu - Húnabyggð

Húnabyggð leitar að starfsfólki í stuðnings- og stoðþjónustu. Um er að ræða fullt starf og/eða hlutastarf sem felur í sér stuðning við einstaklinga.

Helstu verkefni og ábyrgð

Markmið stuðningsþjónustu er að :

- aðstoða og styrkja einstaklinga sem þurfa á stuðningi að halda við heimilishald og athafnir daglegs lífs

- rjúfa félagslega einangrun

- efla til sjálfshjálpar og gera einstaklingum kleift að búa sem lengst í heimahúsi

- styðja við börn í daglegu lífi, svo sem við íþrótta- og tómstundastarf

- valdefla og hvetja einstaklinga til virkrar þátttöku í samfélaginu, þar með talið atvinnuþátttöku.


Menntunar- og hæfniskröfur

· Jákvæðni og áhugi á að starfa með einstaklingum á öllum aldri

· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

· Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum

· Stundvísi, samviskusemi og reglusemi

· Bílpróf æskilegt

· Þarf að hafa náð 18 ára aldri

· Kostur ef viðkomandi hefur menntun eða reynslu í starfi með fólki með fötlun

· Hreint sakavottorð, skilyrði


Nánari upplýsingar um starfið veitir Sara Lind Kristjánsdóttir félagsmálastjóri velferðarsviðs, sara@hunabyggd.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.