25. ágúst 2026
Starfsmaður í heimaþjónustu HVE Hvammstanga
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) Hvammstanga óskar eftir að ráða í Snælduna heimaþjónustu, þróunarverkefni Húnaþings Vestra og HVE um samþætta heimaþjónustu.
Ákjósanlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall er 30-80% eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heimastuðningur getur falið í sér:
- Stuðning við heimilishald t.d. þrif og innkaup
- Stuðning við athafnir daglegs lífs
- Félagslegan stuðning
- Heimsendan mat
- Öryggisinnlit
Hæfniskröfur
Gerð er krafa um
- Góða hæfni í mannlegum samskiptum og faglegan metnað
- Stundvísi, sjálfstæð vinnubrögð og faglegan metnað og gagnkvæma virðingu og háttsemi
- Sveigjanleika í starfi
- Góða íslensku kunnáttu.
- Þarf að hafa náð 18 ára aldri
- Bílpróf og umráð yfir bíl.
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með öldruðum einstaklingum, einstaklingum með skerta starfsgetu eða fjölskyldum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Sótt er um á starfatorg.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 30-80%
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sesselja Kristín Eggertsdóttir
Tölvupóstur: snaeldan.heimathjonusta@hve.is
Sími: 432-1306
Henrike Wappler
Tölvupóstur: snaeldan.heimathjonusta@hve.is
Sími: 432-1306