21. ágúst 2026
Starfsfólk í eldhúsi- HSN Sauðárkrókur
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki leitar að jákvæðu og ábyrgu starfsfólki til að starfa í eldhúsi. Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í eldhúsi þar sem lögð er áhersla á gott samstarf, fagmennsku og hreinlæti. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Sauðárkrókur og Skagafjörður bjóða upp á framúrskarandi aðstæður til að samræma gefandi starf og gott líf utan vinnu, þar sem stutt er í náttúruna og samfélagið einkennist af samheldni, öflugu menningarlífi og fjölbreyttum tækifærum til afþreyingar.
Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi
Uppfært: Umsóknarfrestur var framlengdur18. ágúst 2026, úr 24. ágúst til 1. september 2026. Framlenging umsóknarfrests hefur ekki áhrif á mat umsókna og verða allar umsóknir metnar á jafnræðisgrundvelli.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur og framreiðsla máltíða í samræmi við verklagsreglur
- Aðstoð við matreiðslu og bakstur
- Uppvask, þrif og almennur frágangur í eldhúsi
- Móttaka og meðhöndlun hráefna
- Tryggja að reglum um hreinlæti og matvælaöryggi sé fylgt
- Samstarf við annað starfsfólk við að tryggja góða þjónustu
- Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta stjórnanda
Hæfniskröfur
- Reynsla af störfum í eldhúsi er kostur
- Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
- Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í teymi og taka þátt í góðu samstarfi
- Almenn hollustuhátta- og hreinlætisvitund
- Stundvísi og þjónustulund
- Íslensku- eða enskukunnátta skilyrði
- Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Aldan, stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku og kynningarbréf. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026
Sótt er um starfið hér.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir
yfirhjúkrunarfræðingur svæðis
Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is
Sími: 432 4220