21. ágúst 2026

Starfsfólk í eldhúsi - HSN Blönduósi

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi leitar að öflugum og samviskusömum starfsmanni til starfa í eldhús. Staðan er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu. Um er að ræða fjölbreytt starf í góðu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð, gott samstarf og jákvætt viðmót. Starfið er í dagvinnu með vinnu aðra hverja helgi.

Hér má sjá upplýsingar um HSN á Blönduósi: Fjölbreytt starfsemi og hlýtt starfsumhverfi

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar


Áhugasamir eru hvattir til að senda tölvupóst fyrir frekari upplýsinga á adalheidur.magnusdottir@hsn.is eða helga.margret.johannesdottir@hsn.is


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og framreiðsla máltíða samkvæmt verklagi
  • Aðstoð við matreiðslu og skömmtun matar
  • Aðstoð við mat í matsal
  • Frágangur, uppvask og þrif í eldhúsi og tengdum rýmum
  • Móttaka og meðhöndlun matvæla og annarra aðfanga
  • Viðhalda góðu hreinlæti og vinna samkvæmt gildandi reglum um matvælaöryggi
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Áhugi á starfi í eldhúsi og þjónustu við skjólstæðinga og starfsfólk
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og vandvirk vinnubrögð
  • Góð íslensku- eða enskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakavottorð og gott orðspor


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum ef við á. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.


Sótt er um starfið hér.


Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.


HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.


Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir

matartæknir

Tölvupóstur: adalheidur.magnusdottir@hsn.is

Sími: 432 4100

Helga Margrét Jóhannesdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: helga.margret.johannesdottir@hsn.is

Sími: 432 4100