21. ágúst 2026

Sjúkraliðar/sjúkraliðanemar og starfsfólk í aðhlynningu á hjúkrunardeildir - HSN Sauðárkrókur

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir sjúkraliðum/sjúkraliðanemum og öðru starfsfólki við aðhlynningu á hjúkrunardeildir. Ráðningartími er skv. samkomulagi en í boði er bæði tímabundin og ótímabundin störf. Starfshlutfall er skv. samkomulagi.


Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.

Í Skagafirði eru öll skólastig, frá leikskóla og upp í háskóla. Skagafjörður er útivistar paradís og þar er úrval gönguleiða, gott skíðasvæði og frábær golfvöllur. Hestamennska á sér fastan sess í héraðinu og í boði eru ótal reiðleiðir. Íþróttalífið er í miklum blóma og má þar nefna körfubolta, fótbolta, frjálsar, júdó, sund, golf, skíði, blak og margt fleira.


Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi


Uppfært: Umsóknarfrestur var framlengdur 18. ágúst 2026, úr 24. ágúst til 1. september 2026. Framlenging umsóknarfrests hefur ekki áhrif á mat umsókna og verða allar umsóknir metnar á jafnræðisgrundvelli.


Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Önnur tilfallandi störf


Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi ef við á/ staðfesting á námi fyrir nema ef við á
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Reynsla er kostur en ekki skilyrði
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi
  • Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun
  • Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá á íslensku, kynningarbréf og afrit af starfsleyfi sjúkraliða ef við á. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.


Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.


Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.


Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026

Sótt er um starfið hér.



Nánari upplýsingar veitir

Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is

Sími: 432 4220