7. september 2026

Sérfræðingur í áhættustýringu – óstaðbundið starf

Viltu gegna lykilhlutverki í eftirliti með áhættustefnu og innra eftirliti hjá Byggðastofnun?

Við leitum að öflugum sérfræðingi til að annast áhættueftirlit og taka virkan þátt í þróun áhættustýringar stofnunarinnar. Starfið er fjölbreytt og faglega krefjandi en gefandi. Það felur m.a. í sér tækifæri til að hafa áhrif á þróun stjórnarhátta, mótun innra starfs og verkferla hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir forstöðumann rekstrarsviðs og að hluta undir forstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Gerð og eftirfylgni áhættustefnu Byggðastofnunar skv. verklagsreglum.
  • Gerð áhættuskýrslna og skýrslugjöf til stjórnar.
  • Skýrslugjöf til eftirlitsaðila og annarra hagaðila.
  • Umsjón með afskriftarsjóði útlána.
  • Þátttaka í gerð ársreiknings og árshlutauppgjörs.
  • Þróun og eftirfylgni innra eftirlits og tengdra verkferla.
  • Eftirfylgni með breytingum á regluverki um fjármálastofnanir og mat á áhrifum þeirra á starfsemi stofnunarinnar.


Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði viðskiptafræði, hagfræði, fjármála eða reikningshalds.
  • Góður skilningur á fjármálum og góð greiningarhæfni.
  • Reynsla af greiningarvinnu og færni í Excel eru skilyrði.
  • Hæfni til að setja flóknar upplýsingar fram á skýran og hnitmiðaðan hátt.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Hæfni til að forgangsraða verkefnum, halda yfirsýn og skila vandaðri vinnu innan tímamarka.


Frekari upplýsingar um starfið

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og staðfesting á prófgráðum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.

Starfsaðstaða er í nýjum húsakynnum Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Þó er mögulegt að sinna starfinu frá annarri starfsstöð utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins. Umsækjendur skulu tilgreina ósk um staðsetningu í umsókn sinni.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.


Starfshlutfall er 100%.

Umsókn skal skilað í umsóknargátt á heimasíðu Byggðastofnunar, byggdastofnun.is. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um stofnunina.

Umsóknarfrestur er til og með 18.09.2026


Starfið býður upp á

  • Áhrif á þróun áhættustýringar og stjórnarhátta hjá Byggðastofnun.
  • Sjálfstætt og fjölbreytt sérfræðistarf.
  • Samstarf við stjórnendur og aðkoma að upplýsingagjöf til stjórnar.
  • Tækifæri til að þróa verklag, greiningar og innra eftirlit.
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi og möguleika á að sinna starfinu hvar sem er á landinu, utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins.


Nánari upplýsingar veitir

Arnar Már Elíasson

forstjóri Byggðastofnunar

Tölvupóstur: arnar@byggdastofnun.is

Sími: 455-5400

Magnús Helgason

forstöðumaður rekstrarsviðs

Tölvupóstur: magnus@byggdastofnun.is

Sími: 455-5400