20. ágúst 2026
Sérfræðingur á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða sérfræðing á Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd. Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst.

Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga annast afgreiðslu á umsóknum um atvinnuleysisbætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Meðal verkefna skrifstofunnar er að taka ákvarðanir um réttindi einstaklinga til atvinnuleysisbóta, greiða bætur og annast eftirlit. Ásamt því að sjá um innheimtur á ofgreiddum atvinnuleysisbótum.
Sérfræðingur mun sinna úrvinnslu og afgreiðslu umsókna, eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta, tekur þátt í þróun verkferla og öðrum verkefnum á verkefnasviði skrifstofunnar, eftir því sem við á. Starfið kallar á samskipti við önnur svið stofnunarinnar og sérfræðiaðstoð við þjónustuþega hennar.
Starfstöð sérfræðings er á Skagaströnd.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Upplýsingagjöf og úrlausn mála í tengslum við greiðslur, viðurlög og bótarétt.
· Afgreiðsla á málum er varða eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta.
· Samskipti og sérfræðiaðstoð við önnur svið stofnunarinnar og þjónustuþega hennar.
· Margvísleg skrifstofustörf, símsvörun og önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
· Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
· Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
· Góð íslensku- og enskukunnátta.
· Góð tölvukunnátta.
· Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og opinberri stjórnsýslu telst kostur.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðunin um ráðningu hefur verið tekin. Starfshlutfall er 100 % og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veita Jensína Lýðsdóttir, forstöðumaður (jensina.lydsdottir@vmst.is) og Auður Inga Ísleifsdóttir, sérfræðingur á mannauðsdeild (mannaudssvid@vmst.is) eða í síma 515-4800.
Sótt er um starfið hér.