3. september 2026
Opið fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina
Opið er fyrir umsóknir vegna þróunarverkefna búgreina, garðyrkju, sauðfjárræktar, nautgriparæktar og hrossaræktar.
- Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.
- Í sauðfjárrækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska sauðfjárrækt og falla undir kennslu, rannsóknir, leiðbeiningar og/eða þróun í sauðfjárrækt.
- Í hrossarækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska hrossarækt og fela í sér að viðhalda verðmæti eiginleika í íslenska hrossastofninum og velferðar hestsins.
- Í garðyrkju eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska garðyrkju og falla undir ráðgjafaverkefni, kynningaverkefni, rannsókna- eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni, verkefni sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og endurmenntunarverkefni.
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um þróunarverkefni búgreina er til 15. október 2026. Auglýst er eftir umsóknum tvisvar á ári. Sótt er um á Afurð.
Nánar hér.