25. ágúst 2026
Mannauðsráðgjafi í starfsumhverfisteymi - Háskóli Íslands á Hólum
Laust er til umsóknar starf mannauðsráðgjafa í starfsumhverfisteymi Mannauðssviðs Háskóla Íslands. Starfshlutfall er umsemjanlegt á bilinu 80%-100%. Starfsstöð er við Háskóla Íslands á Hólum og mun mannauðsráðgjafi veita stjórnendum og starfsfólki þar, sem og við Stofnun rannsóknasetra, ráðgjöf og stuðning á sviði mannauðsmála.
Meginhlutverk mannauðssviðs er að stuðla að faglegum og samræmdum vinnubrögðum í mannauðsmálum, tryggja að meðferð þeirra sé í samræmi við lög, reglur og stefnu Háskóla Íslands. Á mannauðssviði starfa 19 manns, sem búa yfir sérhæfðri reynslu og menntun á sviði mannauðsmála og veita stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf, leiðbeiningar og stuðning.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mannauðsráðgjöf og stuðningur til stjórnenda og starfsfólks Háskóla Íslands á Hólum og Stofnunar rannsóknasetra.
- Umsjón með mannauðsmálum sem lúta að starfsumhverfi, samskiptum, frammistöðu, vinnustaðamenningu og fjarvistum.
- Þátttaka í þróun, innleiðingu og nýsköpun á sviði mannauðsmála.
- Þátttaka í gerð verklagsreglna tengdum starfsumhverfismálum.
- Ráðgjöf og stuðningur á sviði jafnréttismála.
Hæfniskröfur
- Háskólapróf með áherslu á mannauðsstjórnun, vinnusálfræði, stjórnun eða skyldar greinar.
- Reynsla á sviði mannauðsmála.
- Reynsla af starfsumhverfismálum er kostur.
- Reynsla af mannauðsmálum í stórum skipulagsheildum eða í opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileikar, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til þess að ná árangri í starfi.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Háskólinn Íslands á Hólum getur veitt aðstoð við að finna húsnæði í Skagafirði sé þess þörf.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Ferilskrá
- Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
- Afrit af prófskírteinum
- Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.09.2026
Sótt er um starfið hér.
Nánari upplýsingar veitir
Ragnhildur Ísaksdóttir
Sviðsstjóri mannauðssviðs
Tölvupóstur: ragnhildurisaks@hi.is