21. ágúst 2026

Lyfjaútibú Hvammstanga - þjónusta og ráðgjöf

Leitað er að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu og afgreiðslu í verslun Lyfju á Hvammstanga. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.


Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afgreiðsla lausasölulyfja


Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynslu af verslunarstörfum


Starfið:

Um hlutastarf er að ræða og vinnutími er frá 12:00-16:00 alla virka daga.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.


Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.


Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Friðþjófur Már Sigurðsson, lyfsali í Lyfju Sauðárkróki í síma 543-5700 og á fridthjofur@lyfja.is

Sótt er um starfið hér.


Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.