33. ársþing SSNV
33. ársþing SSNV var haldið í Gránu á Sauðárkróki 9. apríl nk. Dagskrá hófst kl. 9:30 með þingsetningu og stóð til kl. 15:00.
Á ársþingi SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Ársþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið. Ársþing SSNV fer með æðsta vald í málefnum samtakanna.
Dagskrá
Miðvikudagur 9. apríl 2025
Dagskrá
9:30 Þingsetning.
Einar Eðvald Einarsson, formaður stjórnar SSNV
Kosning þingforseta, varaforseta, tveggja ritara, tveggja vararitara.
Kynning á nefndum þingsins – formenn þingnefnda
9:40 Kjörnefnd kannar lögmæti þingsins
Sveinbjörg Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV
9:50 Skýrsla stjórnar SSNV fyrir árið 2024
Einar Eðvald Einarsson, formaður stjórnar SSNV
10:00 Ávörp
Ólafur Adolfsson, 1. þingmaður, Norðvesturkjördæmis.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Norðvesturkjördæmis.
Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Norðvesturkjördæmis.
María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Norðvesturkjördæmis.
Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitafélaga.
11:00 Ársreikningur SSNV 2024, Helgi Níelsson hjá KPMG kynnir ársreikning SSNV.
11:10 Markaðsstofa Norðurlands
Halldór Óli Kjartansson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Norðurlands, fer yfir starfsemi og helstu verkefni í samstarfinu.
11:20 Störf nefnda
Fjárhagsnefnd fjallar um ársreikning og laun og þóknun til stjórnar og nefnda. Allsherjarnefnd fjallar um ályktanir. Stjórnskipulagsnefnd fjallar um samþykktir.
12:00 Hádegisverður
12:30 Endurskoðun 9. kafla sveitarstjórnarlaga
Fyrirhugað er að leggja fram á Alþingi frumvarp með breytingum á lögunum í haust. Innviðaráðuneytið hefur leitast eftir afstöðu sveitarfélaganna til núverandi ákvæða kaflans áður en drög að frumvarpi verður lagt fyrir í samráðsgátt stjórnvalda. Til þess að ná þeim sjónarmiðum fram hefur verið ákveðið að halda vinnustofur í hverjum landshluta, í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtök sveitarfélaga. Tilgangur vinnustofanna er að eiga samráð við sveitarstjórnarfólk um land allt og fá efnivið fyrir ráðuneytið til að vinna áfram og í framhaldinu móta tillögur til breytinga á 9. kafla sveitarstjórnarlaga. Freyja Sigurgeirsdóttir frá Sambandinu stýrir vinnustofunni.
14:00 Afgreiðsla nefndarálita
14:30 Afhending Byggðagleraugnanna 2025
15:00 Þingslit
Dagskráin er kynnt með fyrirvara um breytingar
Þinggjörð
Skýrsla formanns
Ársþing SSNV – haldið á Sauðárkróki 9. apríl 2025
Ágætu þingfulltrúar, þingmenn og aðrir gestir.
Þegar ég settist niður og fór að velta fyrir mér landshlutanum okkar kom ýmislegt upp í hugann um stöðu okkar og tilvist í stóra samhenginu.
Þrátt fyrir það að Ísland sé eyja erum við 17. stærsta land Evrópu með okkar 103.000 ferkílómetra af landi. Við erum því landfræðilega stór en samt eitt af fimm strjálbýlustu löndum heims með okkar 3,5 íbúa á hvern ferkílómetra.
Ef við lítum okkur nær og horfum eingöngu á okkar landshluta, þá eru það ekki nýjar upplýsingar að okkar landshluti er líka landfræðilega stór eða rúm 12% af landinu, en fámennur með um 7.500 manns eða innan við tvö prósent íslensku þjóðarinnar. Þetta gerir 0,56 íbúa á hvern ferkílómetra meðan að staðan á höfuðborgarsvæðinu er 250 íbúar á hvern ferkílómetra.
Þetta er kannski ekki stærsta áhyggjuefnið heldur sú staðreynd að íbúunum hér hefur ekki fjölgað mjög hratt síðustu ár, en íbúafjölgunin á Norðurlandi vestra er einungis um 20% af meðaltalsfjölguninni á Íslandi síðustu ár.
Norðurland vestra er því sérlega krefjandi svæði vegna stærðar og fámennis sem gerir alla innviðauppbyggingu hlutfallslega dýra, en á sama tíma er öflug innviðauppbygging forsenda þess að byggð haldist og eflist.
Í mjög áhugaverðri grein um byggðaþróun, sem ég las á dögunum eftir Torfa Jóhannesson frá Torfalæk, en hann vinnur í dag hjá „Byggðastofnun Evrópu“, koma fram margir áhugaverðir punktar. Hann segir meðal annars að veik svæði ákveðinna byggðarlaga séu ekkert einsdæmi á Íslandi og að í raun sé það sagan endalausa í mörgum löndum. Orðrétt segir hann um neikvæða byggðaþróun í öðrum löndum: „Stundum er það náma sem lokar, stundum herstöð, stundum stórt fyrirtæki, stundum ferðamannasvæði sem fer úr tísku og stundum bara hægfara þróun drifin af lágri fæðingartíðni og löngun unga fólksins að sækja menntun og vinnu í stærri þéttbýlisstaði“, sem veldur því að byggð gefur eftir.
Mér finnast þessi orð Torfa áhugaverð og kannski smá huggun harmi gegn að við hér á Norðurlandi vestra séum ekki eina svæðið sem er að glíma við neikvæða byggðaþróun. Mig langar að halda áfram að vitna í grein Torfa, en hann fer að velta fyrir sér rót vandans og segir þá meðal annars:
„Það er sjálfsagt að leita skýringa í nærumhverfinu – spyrja hvar við hefðum getað gert betur, hvar við misstum af tækifærum. Oftast geta menn séð í baksýnisspeglinum að of lengi var reynt blása í kulnaðar glæður; trúa því að sauðfé hætti að fækka; reka skóla fyrir allt of fáa nemendur, byggja upp höfn fyrir fækkandi skipakomur, halda of lengi í lítil sveitarfélög liðins tíma. En rót vandans er sjaldan þessi einstöku atvik eða misvitrar ákvarðanir“.
En hver er þá rót vandans? Af hverju hefur okkar landshluti ekki náð að fylgja að lágmarki meðaltalsþróuninni á Íslandi í íbúafjölda og hagvexti. Svarið er kannski ekki einfalt en ljóst að fjarlægð frá öllum stærstu þéttbýlisstöðunum með fjölbreyttasta atvinnuframboðið, er svæðinu neikvæð varðandi hugsanlega fólksfjölgun. Eins var atvinnulífið hér frá fornu fari fábreytt, en það byggðist fyrst og fremst á landbúnaði og fiskveiðum. En tæknivæðing með tilheyrandi fækkun ársverka og kvótasetning í báðum atvinnugreinum hafði mikil áhrif á þróun byggðanna á Íslandi og þá ekki síst hér á Norðurlandi vestra. Áhrifin af þessari þróun urðu neikvæð á landshlutann í heild vegna þess að það var alltof oft sem of lítið annað sem tók við þegar þróunin breytti því atvinnumynstri sem byggðirnar hér byggðust á.
Þó gaman væri að kryfja þessa sögu og þróun betur, þá mun ég ekki gera það að sinni en eftir stendur spurningin, hvað á að gera eða hvað þarf að gera til að staða landshlutans batni og vöxtur í bæði atvinnulífi og fólksfjölda verði að lágmarki á pari við meðaltalsþróunina á Íslandi?
Stutta svarið er kannski það að við þurfum að efla annað atvinnulíf en það sem allt byggðist á. En til að svo megi verða þarf að gera landshlutann að virkilega spennandi valkosti fyrir fólk sem vantar stað fyrir sína uppbyggingu, þ.e.a.s. að skapa sterka innviði og skapa umhverfi þar sem auðvelt er fyrir fólk að koma hugmyndum sínum og verkefnum í framkvæmd.
Ég ætla ekki að gera lítið úr því sem hefur verið gert, eða því sem við höfum eins og Sóknaráætlun landshlutans og þá peninga sem þar koma frá ríkinu til nýsköpunar eða úr þeim peningum sem koma í gegnum Byggðastofnun vegna atvinnuþróunar. Hvoru tveggja hefur skilað ákveðnum árangri, en af hverju er þá staðan ekki betri?
Hjá SSNV hefur verið unnið að fjölmörgum verkefnum með fjölda fólks á liðnum árum. Oft getur samt verið erfitt að meta árangur svona vinnu og áhrifin af þessum verkefnum, því stundum er það þannig að þegar þau heppnast og klárast þá er bara eins og þau hafi alltaf verið til staðar í samfélaginu.
Eitt þeirra verkefna sem nú stefnir í að fái farsælan endi, er ný starfsemi sem er að byrja í húsnæði fyrrum rækjuvinnslu á Skagaströnd, en það er smíði einingahúsa á staðnum sem svo verða flutt til kaupenda. Þetta er jákvætt og fleira mætti nefna. En þær eru samt margar hugmyndirnar sem unnið hefur verið að sem því miður aldrei verða að raunverulegri atvinnustarfsemi með góða peningalega veltu og fjölda stöðugilda.
Ég held að ein ástæða þess að mörg þessara verkefna verði ekki að veruleika eftir að þróunartíma lýkur, sé skortur á alvöru þolinmóðu fjármagni sem þorir að taka þátt í uppbyggingu með frumkvöðlum á byggðarlega veiku svæði þar sem byggðarþróun hefur verið neikvæð. Hér geta ríkisstjórn og Alþingi gert beturm, en það er ekki nóg að einstaklingar eða fjárfestar hafi áhuga ef hið opinbera þorir svo ekki að taka þátt.
Í mínum huga er allt í lagi að mismuna landssvæðum eftir búsetuþróun, alla vega svo lengi sem við höfum þá stefnu að hafa byggð í viðkomandi landshluta. Fyrir atvinnuuppbyggingu á veikustu svæðunum þarf því að koma til lánsfjármagn sem nánast er vaxtalaust og hefur getu og þor til að taka þátt í uppbyggingu á svæðum sem bankar og þar með talin Byggðastofnun þora ekki að koma inná í dag. Nefni ég þar sérstaklega litla getu fjárfestingafélaga sem starfa meðal annars í skjóli Byggðastofnunar en til þeirra er varið of litlum fjármunum.
En það er ekki nóg að efla atvinnulífið því samgöngur og innviðir þurfa líka að vera í lagi. Hér í landshlutanum er t.d. aðgengi fyrirtækja að raforku ekki á nokkurn hátt ásættanlegt en framboð á umfram raforku er afar lítið og flutningskerfið veikburða og gamalt. Umræður um endurbætur á kerfinu hafa staðið lengi en ekki raungerst vegna meðal annars langra og flókinna skipulagsferla ásamt neikvæðri forgangsröðun hins opinbera gagnvart okkar landshluta.
Það er heldur ekki ásættanlegt að helmingur, 50%, vegakerfisins í landshlutanum skuli ennþá vera gamlir malarvegir með einbreiðum brúm. Þetta þarf að laga. Það er samstaða innan landshlutans um forgangsröðun, samanber nýlega samþykkta Samgöngu- og innviðaáætlun SSNV. Vandamálið er hins vegar að hlutur landshlutans í fjármagni til vegaframkvæmda af hálfu ríkisins er ekki í nokkru samhengi við stærð landshlutans, landfræðilega, né þörf vegakerfisins á endurbótum. Kannski er leiðin sú fyrir ríki og sveitarfélög að gera sérstakan samgöngusáttmála fyrir landsbyggðina, sambærilegan og verið er að gera milli ríkis og sveitarfélaga á Suðvesturhorni landsins. En með slíku samkomulagi mætti jafna stöðu landshlutanna frá því sem nú er.
Það er líka kostur að auka enn frekar á menntunarstig íbúanna, en það mun án efa leiða til aukinnar nýsköpunar og eflingar á atvinnulífinu. Sterkir grunnskólar og aukið framboð af framhaldsnámi og háskólanámi gegna þar lykilhlutverki. Hér gegna bæði Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra og Háskólinn á Hólum lykilhlutverki, en aukinn vöxtur þeirra á sannarlega að geta styrkt landshlutann sem heild og gert hann að meira spennandi stað til að búa á. Það er því mikilvægt að áætlanir þessara stofnana um aukinn vöxt nái fram að ganga og legg ég þar þunga áherslu á að fyrirætlanir Háskóla Íslands á Hólum um byggingu rannsóknahúss vegna Lagereldis og kennslu nái fram að ganga ásamt öðrum áætlunum um uppbyggingu skólans sem lagðar hafa verið fram.
Það sama á einnig við um fyrirhugaða stækkun verknámsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, en þær áætlanir sem þar eru uppi þurfa einnig að ná fram. Fyrir ári síðan var undirritaður samningur milli allra sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins um þessa viðbyggingu, sem sveitarfélögin borga 40% af. Boltinn er hins vegar hjá ríkinu en því miður er lítið um svör og óljóst hver tímalínan er í málinu, þó þörfin sé æpandi og loforð hafi verið uppi um að verkefnið væri í forgangi.
Ef við horfum yfir sviðið og veltum fyrir okkur möguleikunum þá er ferðaþjónustan klárlega einn af þeim atvinnuskapandi greinum þar sem við eigum mikið inni. Vissulega eru samt margir aðilar að gera góða hluti en það má án efa gera betur í bæði uppbyggingu og með aukinni samvinnu ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
Til að reyna að bæta úr þessu þá var lögð mikil áhersla hjá stjórn SSNV á ferðaþjónustu og markaðssetningu hennar við val á áhersluverkefnum vegna ársins 2025. Af þeim rúmum 50 milljónum sem við höfðum úr að spila þá ráðgerum við að nota milli 15 og 20 í ferðaþjónustutengd verkefni sem flest tengjast aukinni markaðssetningu og samvinnu ferðaþjónustu aðila. Vinna við þetta er núna á upphafsmetrunum og bind ég vonir við góðan árangur af þessari vinnu og samstarfi okkar við Markaðsstofu Norðurlands í markaðssetningu þeirra.
Eins hefur mikið verið gert í að auka millilandaflug til Akureyrar og er það jákvætt fyrir bæði íslenskt hagkerfi og ekki síst uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi öllu. Hér verða ríkisvaldið og Alþingi hins vegar að stíga inní og styðja uppbyggingu millilandaflugs til Akureyrar með nákvæmlega sama hætti og ríkið gerir sjálft gagnvart Keflavíkurflugvelli í gegnum meðal annars ÍSAVÍA. Ég held það myndi heyrast hljóð úr sveitarfélögum á Suðvesturhorni landsins ef þau ættu að kosta markaðssetningu Keflavíkurflugvallar, en fyrir þá sem ekki vita þá hafa sveitarfélög á Norðurlandi verið að kosta að stórum hluta þessa markaðsvinnu hér meðan ríkið sér um hana í gegnum ISAVÍA fyrir Keflavíkurflugvöll. Þessu þarf að breyta.
Það er fjölmargt fleira sem hægt væri að nefna og síðan laga til að gera hag sveitarfélaga sem eiga í vök að verjast betri. Það má t.d. nefna endurgreiðslu virðisaukaskatts af innviðaframkvæmdum sveitarfélaga. En það virðist standa í ríkinu að koma því á, en kannski væri leið að byrja á því fyrir þau sveitarfélög þar sem íbúaþróun hefur verið undir meðaltali. Það myndi flýta uppbyggingu þessara svæða og gera þau ennþá áhugaverðari til atvinnuuppbyggingar. Eins er ljóst að hin svokölluðu orkusveitarfélög eru ekki á nokkurn hátt að njóta góðs af fasteignagjöldum þeirra mannvirkja sem reist eru til virkjunar og orkuframleiðslu. Það hlýtur að vera mjög umhugsunarvert og ekki síst í ljósi þess að svo byggja þessi félög eins og t.d. Landvirkjun sér skrifstofuhús í Reykjavík og borga þá fyrir lóð og gatnagerðagjöld 1,3 milljarð króna og síðan árlega fasteignagjöld í framhaldi af því.
Eins má nefna nýtt frumvarp um hækkun veiðigjalda til ríkisins en ljóst er að sú hækkun er fyrst og fremst landsbyggðarskattur og eftir því sem meira af tekjum viðkomandi fyrirtækja rennur til ríkisins því minna svigrúm hafa þau til eigin uppbyggingar og samfélagslegra verkefna sem þau hafa svo sannarlega flest öll tekið virkan þátt í.
Að lokum vil ég segja frá því að það urðu framkvæmdastjóraskipti hjá okkur í lok marsmánaðar, en þá lét Katrín M. Guðjónsdóttir af störfum, en hún var framkvæmdastjóri SSNV frá árinu 2022. Vil ég þakka henni gott og ánægjulegt samstarf og góð störf í þágu samtakanna. Um leið vil ég bjóða velkomna til starfa, sem framkvæmdastjóra Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur, en hún var tilbúin að taka við keflinu með afar litlum fyrirvara og fyrir það erum við mjög þakklát.
Einar E. Einarsson,
Formaður SSNV
Gögn þingsins