10. haustþing SSNV
10. haustþing SSNV verður haldið á Hótel Laugarbakka, Húnaþingi vestra, 1. október nk. Dagskrá hefst kl. 14:00 með þingsetningu.
Á haustþingi SSNV eiga sæti fulltrúar sveitarfélaganna en hafa þeir einir atkvæðisrétt sem til þess eru kjörnir. Haustþing er opið til áheyrnar kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum, framkvæmdastjórum og starfsmönnum sveitarfélaga og starfsmönnum SSNV og tengdra verkefna á Norðurlandi vestra. Stjórn samtakanna er heimilt að bjóða til þingsins aðilum sem tengjast umfjöllun og starfi samtakanna, með málfrelsi og tillögurétti. Alþingismenn úr Norðvesturkjördæmi hafa rétt til setu á ársþingi með heimild til að ávarpa þingið. Þing SSNV fara með æðsta vald í málefnum samtakanna.
Dagskrá
10. HAUSTÞING SSNV
Haustþingið haldið á Hótel Laugarbakka miðvikudaginn 1. október 2026.
Hefst haustþingið kl. 14.00. Gert er ráð fyrir þingslitum um kl. 18:00.
Dagskrá:
14:00 Þingsetning
Magnús Magnússon, formaður stjórnar SSNV. Kosning þingforseta, varaforseta, tveggja ritara og tveggja vararitara.
14:10 Kjörnefnd kannar lögmæti þings
14:15 Fjárhags- og starfsáætlun SSNV fyrir árið 2027
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
14:30 Ávörp gesta
15:30 Störf nefnda
Fjárhagsnefnd fjallar um fjárhagsáætlun SSNV 2027.
Allsherjarnefnd fjallar um starfsáætlun SSNV 2027 og ályktanir þingsins.
Stjórnskipulagsnefnd fjallar um samþykktir SSNV.
Kaffi
16:00 Erindi
Almenn kynning á starfsemi SSNV
Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
Eimur
Sigurður Líndal Þórisson sviðsstjóri sjálfbærrar viðskiptaþróunar
Áfangastofa Norðurlands
Halldór Óli Kjartansson, staðgengill framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands.
17:30 Kosningar
Kosning endurskoðanda
17:40 Afgreiðsla nefndarálita
18:00 Þingslit og sameiginlegur kvöldverður í boði SSNV
*Áskilinn er réttur til breytinga á dagskrá.
Gögn þingsins
Þinggjörð
Hér má nálgast þinggjörð ársþingsins.
Skýrsla stjórnar