14.11.2025
Loftslags- og orkusjóður hefur nú auglýst 100 milljónir króna í styrki til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum, þar sem markmiðið er að styðja garðyrkjuframleiðendur við að draga úr orkunotkun, efla rekstrarhagkvæmni og innleiða tæknivæddar lausnir sem styrkja samkeppnishæfni greinarinnar. Umsóknarfrestur er til 15. desember nk.
Lesa meira
14.11.2025
Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög samkvæmt stefnumótandi byggðaáætlun 2022–2036 vegna aðgerðar C.1 – sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða, þar sem allt að 170 milljónir króna verða veittar árið 2026 til verkefna sem styðja við svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi eða einhæft atvinnulíf. Umsóknum skal skilað í umsóknargátt Byggðastofnunar fyrir miðnætti 22. janúar 2026.
Lesa meira
14.11.2025
Tólf öflug nýsköpunarteymi víðs vegar af landinu hafa lokið þátttöku í Startup Landinu 2025 – sjö vikna viðskiptahraðli sem styrkir frumkvöðla á landsbyggðinni og hjálpar þeim að þróa hugmyndir sínar af metnaði og fagmennsku. Verkefnið er samstarf landshlutasamtakanna utan höfuðborgarsvæðisins og hefur á undanförnum árum reynst mikilvægur hvati fyrir ný verkefni, atvinnuþróun og aukna byggðafestu.
Lokaviðburðurinn fór fram í Hofi á Akureyri þar sem teymin kynntu verkefni sín fyrir gestum – og sýndu með glæsibrag hversu mikill kraftur og sköpunargleði býr í frumkvöðlum landsbyggðarinnar.
Lesa meira
13.11.2025
Á fundinum var m.a. farið yfir byggðaáætlun Íslands 2022–2036 (sjá á Alþingi.is) og ræddir bæði kostir og áskoranir hennar. Þátttakendur tóku virkan þátt í umræðum og sköpuðust líflegar og gagnlegar umræður við öll vinnuborð þar sem reynsla og sjónarmið úr ólíkum landshlutum komu saman.
Lesa meira
13.11.2025
Áhersla Byggðaráðstefnunnar 2025 var lögð á að miðla þekkingu, greina áskoranir og varpa ljósi á þau tækifæri sem felast í fjölbreytileika samfélagsins. Ísland er orðið fjölmenningarsamfélag og þar með hefur félagslegur breytileiki orðið órjúfanlegur hluti af byggðamálum. Byggðarþróun snýst um samspil atvinnu, þjónustu, húsnæðis, innviða og samfélags. Enginn þáttur stendur einn, þeir þurfa að virka saman til að skila raunverulegum árangri. Mannauðurinn; fólkið sjálft, er ein af grunnstoðum byggðaþróunar, og án virkrar þátttöku alls samfélagsins verður engin sjálfbær þróun
Lesa meira
13.11.2025
Farsældarráð Norðurlands vestra verður formlega stofnað með undirritun samstarfsyfirlýsingar fimmtudaginn 27. nóvember 2025 í Krúttinu á Blönduósi. Með stofnun ráðsins hefst nýtt og mikilvægt samstarf sveitarfélaga, ríkisstofnana og annarra þjónustuaðila á svæðinu sem miðar að því að tryggja farsæld barna með vellíðan, öryggi og jöfn tækifæri allra barna og fjölskyldna á Norðurlandi vestra í forgrunni.
Lesa meira
12.11.2025
Miðvikudaginn 3. desember n.k. boða SSNV og Markaðsstofa Norðurlands til fundar klukkan 15 í efri sal Miðgarðs menningarhúss í Skagafirði. Þar ætlum við að ræða ákallið um aukna virkni ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra yfir vetrarmánuðina.
Lesa meira
12.11.2025
Þriðjudaginn 18. nóvember verður haldið málþing um leiðir til byggðafestu á sauðfjárræktarsvæðum Dalabyggðar, Stranda og Húnaþings vestra. Málþingið er lokapunktur verkefnis sem Fjórðungssamband Vestfirðinga, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra (SSNV) hafa unnið að á undanförnum misserum.
Lesa meira
12.11.2025
Velkomin til að hlusta og taka þátt í umræðum um hvernig sjónarhorn hringrásarhagkerfisins má efla, til dæmis í starfi atvinnuráðgjafa!
Lesa meira
05.11.2025
Fundargerð 132. fundar stjórnar SSNV, 3. nóvember 2025
Lesa meira