Fréttir

Eftir Guðlaugur Skúlason
•
9. nóvember 2026
Lokaviðburður Startup Landsins fór fram á Selfossi föstudaginn 6. nóvember og var hluti af dagskrá Uppsprettunnar . Viðburðurinn var sannkölluð uppskeruhátíð þar sem teymin sem tekið hafa þátt í Startup Landinu stigu á svið og kynntu verkefni sín. Það var einstaklega gaman að sjá þann árangur og þróun sem hefur átt sér stað á meðan á hraðlinum stóð og óhætt er að segja að þátttakendur hafi staðið sig frábærlega. Startup Landið hefur síðustu vikur verið vettvangur fyrir frumkvöðla víðs vegar að af landinu til að þróa hugmyndir sínar áfram, skerpa á verkefnum sínum, efla færni og byggja upp tengslanet. Fjölbreytileiki verkefnanna endurspeglar vel þann kraft, sköpun og frumkvöðlahugsun sem býr í landshlutunum. Fjölbreytt verkefni hvaðanæva af landinu Alls tóku 12 verkefni frá sjö landshlutum þátt og kynntu verkefni sín á lokaviðburðinum: Ullarkögglar (Suðurland) Framleiðsla á lífrænum áburði úr íslenskri ull sem annars færi forgörðum, í anda hringrásarhagkerfisins. Þátttakandi: Alice Sowa. Korngrís Bjór (Suðurland) Nýsköpun í bruggun þar sem stefnt er að framleiðslu á bjór eingöngu úr íslensku byggi. Þátttakandi: Petrína Jónsdóttir. Hólmur Heilsa og Steinunn Saunagus (Suðurnes ) Uppbygging heilsu- og gufubaðsupplifunar sem eflir vellíðan og ferðaþjónustu á svæðinu. Þátttakandi: Unnur Svava Sverrisdóttir. Byrjum / Fjarheilbrigðistorg (Vestfirðir) Miðlægur stafrænn vettvangur sem sameinar fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu sérfræðinga til að tryggja íbúum landsbyggðarinnar jafnt aðgengi að þjónustu. Þátttakandi: Þóra Kristín Bergsdóttir. Valkyrju Ævintýri (Vestfirðir) Uppbygging ferðaþjónustu og upplifunar á Vestfjörðum allt árið um kring. Þátttakandi: Jake Lampe. Snigill – smár snigill, stórt prótein (Vesturland) Sniglarækt sem opnar nýjar, sjálfbærar leiðir í matvæla- og próteinframleiðslu á Íslandi. Þátttakandi: Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir. Sif's Hair Atelier (Vesturland) Sérhæfðar og náttúrulegar hárlausnir í háum gæðaflokki sem efla sjálfstraust kvenna sem glíma við hármissi. Þátttakandi: Laura Martin Merino. Okkar norður ehf. (Norðurland vestra) Markaðslausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem nýtir stafræna miðlun til að efla sýnileika svæðisins. Þátttakandi: Sigurjón Arthur Friðjónsson og Guðbjörg Bjarnasóttir BlómAría (Norðurland vestra) Nýsköpunarverkefni á sviði blómaræktar og hönnunar í heimabyggð. Þátttakandi: Anna Sif Ingimarsdóttir. Dálæti (Austurland) Hönnun og framleiðsla á séríslenskum skartgripum og vörum sem vekja fortíðarþrá og kátínu. Þátttakandi: Guðdís Jóhannadóttir. Fjarðarhjól ehf. (Austurland ) Hjóla- og afþreyingarferðaþjónusta sem nýtir náttúru og landslag Austfjarða. Þátttakandi: Árni Magnús Magnusson. Syðra Holt ehf. (Norðurland eystra) Lífrænt kaffihús, vinnustofa og framleiðslueldhús fyrir afurðir af býlinu í Svarfaðardal. Þátttakandi: Alejandra Gabriela Soto Hernández. AllergyID (Norðurland eystra) Tæknilausn og smáforrit sem auðvelda fólki með fæðuóþol og ofnæmi að finna matvæli og þjónustu við hæfi. Þátttakandi: Bjarni Þór Ævarsson. Vegferðinni er rétt að byrja Lokaviðburðurinn markaði lok formlegrar dagskrár Startup Landsins að þessu sinni, en um leið upphaf að næsta kafla hjá þátttakendum og verkefnum þeirra. Við þökkum öllum þátttakendum kærlega fyrir samfylgdina, metnaðinn, hugrekkið og kraftinn sem þau hafa lagt í verkefnin sín. Það hefur verið einstaklega gefandi að fylgjast með hugmyndunum þróast og verkefnunum taka framförum. Við hlökkum til að fylgjast áfram með þessum öflugu frumkvöðlum og sjá hvert næstu skref leiða þau. Hraðlinum lýkur, en vegferðinni er rétt að byrja. Horfðu á kynningarnar Upptaka frá lokaviðburðinum og kynningar þátttakenda eru aðgengilegar á YouTube: https://www.youtube.com/watch?v=7_NhVtWPg4k

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
4. nóvember 2026
Stjórn og starfsfólk Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) komu saman á vinnufundi í Kvennaskólanum á Blönduósi 3. nóvember. Tilgangurinn var að fara yfir starfsemi samtakanna og móta áherslur í starfi þeirra næstu árin. Yfirferð á verkefnum og tíma Fyrri hluti dagsins fór í yfirferð starfsfólks á verkefnum sínum. Þar var meðal annars skoðað hvernig tíminn skiptist milli ólíkra verkefna samtakanna. SSNV sinna fjölbreyttum verkefnum fyrir landshlutann, svo sem hagsmunagæslu, atvinnu- og byggðaþróun, umsjón með sóknaráætlun og Uppbyggingarsjóði, menningarmálum og farsæld barna. Yfirsýn yfir hvert tíminn fer er því nauðsynleg þegar forgangsraða þarf. Áherslur til næstu ára Í seinni hlutanum vann stjórn að áherslum fyrir starf samtakanna næstu fjögur árin. Horft var til markmiða sóknaráætlunar Norðurlands vestra, hagsmunamála landshlutans og atvinnuráðgjafar samkvæmt samningi SSNV við Byggðastofnun. „Það skiptir máli að stjórn og starfsfólk setjist niður saman og fari yfir það hvernig við nýtum krafta samtakanna sem best í þágu landshlutans,“ segir Magnús Magnússon, formaður stjórnar SSNV. „Dagurinn gaf okkur góða mynd af umfangi starfsins og skýran grunn til að byggja á næstu árin.“ Næstu skref Niðurstöður vinnudagsins verða lagðar fyrir stjórn SSNV til staðfestingar á næsta stjórnarfundi. Að því loknu mótar teymi SSNV framkvæmdaáætlun á grunni þeirra.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
30. október 2026
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Orkusamfélag Steingerðar auglýsa eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og spennandi starf. Um er að ræða 100% starf sem skiptist til helminga milli byggðaþróunarverkefna SSNV og Evrópuverkefnisins DEPLOY-PED, sem Orkusamfélag Steingerðar tekur þátt í. Starfið er tilvalið fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun landshlutans og starfa í alþjóðlegu samstarfi. Ráðið er til fjögurra ára og SSNV er vinnuveitandi. Helstu verkefni Fyrir SSNV Umsjón með umhverfis- og loftslagstengdum verkefnum í samstarfi við sveitarfélög á Norðurlandi vestra Utanumhald og eftirfylgni með sóknaráætlun Norðurlands vestra Eftirfylgni með byggðaáætlun og öðrum opinberum stefnum sem varða landshlutann og starf SSNV Ráðgjöf við sveitarfélög, fyrirtæki og frumkvöðla eftir því sem við á Þátttaka í öðrum verkefnum SSNV á sviði byggða- og atvinnuþróunar Fyrir DEPLOY-PED Verkefnastjórn og framkvæmd verkþátta Orkusamfélags Steingerðar í DEPLOY-PED Samskipti og samstarf við evrópska samstarfsaðila Skýrslugjöf, miðlun og kynning á niðurstöðum verkefnisins Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf sem nýtist í starfi Reynsla af verkefnastjórnun Þekking eða reynsla af byggðaþróun, stjórnsýslu eða starfsemi sveitarfélaga er kostur Þekking eða áhugi á orkumálum og orkuskiptum er kostur Reynsla af alþjóðlegum eða evrópskum samstarfsverkefnum er kostur Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi hagsaðila Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Í boði Fjölbreytt og lifandi starf þar sem starfsmaður tekur þátt í að móta áherslur Alþjóðlegt samstarf í evrópsku verkefni Góður starfsandi í litlum og samhentum hópi Starfsstöð er á Hvammstanga Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknir og upplýsingar Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir áhuga á starfinu og hæfni til að sinna því. Sótt er um starfið á Alfred.is . Starfið hentar öllum kynjum. Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörg, framkvæmdastjóri SSNV, í síma 866 5390 eða á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is . Um SSNV. Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra eru hagsmunasamtök sveitarfélaga í landshlutanum. Samtökin vinna að atvinnu- og byggðaþróun, nýsköpun og hagsmunagæslu og halda utan um sóknaráætlun landshlutans og Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra. Um Orkusamfélag Steingerðar. Orkusamfélag Steingerðar er samstarf 34 kúabænda í Húnaþingi vestra sem vinna að því að kanna hvort hagkvæmt sé að framleiða lífgas úr kúamykju. Hugmyndin er að breyta lífrænum úrgangi í metan sem nýtist sem eldsneyti og í afgangsefni sem má nýta sem áburð. Markmiðið er að bæta nýtingu auðlinda á búunum, draga úr innflutningi á dísilolíu og tilbúnum áburði og styrkja rekstrargrundvöll landbúnaðarins.

Eftir Guðlaugur Skúlason
•
26. október 2026
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra lokaði í síðustu viku fyrir styrkumsóknir vegna verkefna ársins 2027. Alls bárust 104 umsóknir og var samtals sótt um 200.659.847 krónur . Umsóknirnar skiptast þannig að 57 umsóknir eru vegna menningar- og samfélagsverkefna, 10 umsóknir eru um stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar og 37 umsóknir vegna atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Fram undan er yfirferð og mat á umsóknum og undirbúningur úthlutunar úr sjóðnum. Úthlutunarnefnd mun meta umsóknirnar út frá matsblaði og úthlutunarreglum sjóðsins og markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra . Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og ráðast styrkveitingar af mati á verkefnum og því fjármagni sem er til ráðstöfunar. Á liðnum árum hefur stuðningur sjóðsins átt þátt í að koma fjölbreyttum verkefnum á legg og efla atvinnulíf, nýsköpun og menningarstarf á svæðinu. Verkefnin hafa verið af ýmsum toga og stærðargráðu en eiga það sameiginlegt að stuðla að uppbyggingu og þróun í landshlutanum. SSNV þakkar öllum umsækjendum fyrir umsóknirnar og þann áhuga sem þeir sýna á að skapa ný tækifæri á Norðurlandi vestra. Nánar verður greint frá niðurstöðum úthlutunar þegar þær liggja fyrir.

Eftir Sveinbjörg Rut Pétursdóttir
•
22. október 2026
Vilhelm Ívarsson Jensen, verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar hjá SSNV. Vilhelm Ívarsson Jensen hóf störf hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) miðvikudaginn 21. október sem verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar. Hann hefur aðsetur á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki. Með ráðningu hans eru starfsmenn SSNV nú sjö. Fjárfestingar og stuðningur við atvinnulíf Vilhelm mun leiða fjárfestingaverkefni landshlutans. Í því felst að kortleggja fjárfestingatækifæri á Norðurlandi vestra, vinna að framgangi þeirra og kynna þau fyrir innlendum og erlendum fjárfestum. Það gerir hann í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og aðra hagaðila. Þá veitir hann frumkvöðlum og fyrirtækjum atvinnuráðgjöf, meðal annars um stofnun og rekstur fyrirtækja, gerð viðskiptaáætlana, fjármögnun og þróun viðskiptahugmynda. Reynsla úr fjármálum og frumkvöðlastarfi Vilhelm er viðskiptafræðingur með BS-próf frá Háskóla Íslands. Hann hefur fjölbreytta reynslu af fjármálum, rekstri, fjárfestingartengdum verkefnum, verkefnastjórnun og viðskiptaþróun innan sprota- og vaxtarfyrirtækja á Íslandi og í Kanada. Hann hefur starfað við fjármála- og viðskiptagreiningu hjá DRW og CWP Energy í Kanada og var fjármálastjóri hjá Guide to Iceland. Reynsla hans nær meðal annars til fjárhags- og rekstrargreiningar, áætlanagerðar og innleiðingar breytinga, auk upplýsingagjafar til stjórnar, stjórnenda, fjárfesta og annarra hagaðila. Hann hefur einnig tekið þátt í viðskiptahraðli og frumkvöðlastarfi. Tökum vel á móti honum Á næstunni verður Vilhelm í sambandi við starfandi fyrirtæki á svæðinu og við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra. Við biðjum fólk að taka vel á móti honum. Fyrirtæki og frumkvöðlar sem vilja ræða hugmyndir eða verkefni geta einnig haft samband við hann beint á netfangið vilhelm@ssnv.is . Við bjóðum Vilhelm velkominn til starfa.

