Félagsleikar Fljótamanna

Félagsleikar Fljótamanna verða haldnir öðru sinni um verslunarmannahelgina 2021. Tilgangurinn er að rifja upp sögu og félagsstarf í Fljótum og hafa gaman saman. Efnt verður til ýmissa viðburða s.s. dögurðarfundar, Íslandsmóts í félagsvist, víðavangshlaups, gönguferðar og síðast en ekki síst tónlistarviðburða af ýmsu. Allur ágóði rennur í góð málefni í Fljótum. Nánari dagskrá verður birt bráðlega