Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) á Hvammstanga óskar eftir að ráða starfsmenn í 50-90% stöðu í vaktavinnu við umönnun á öldrunardeildinni. Staðan er laus frá 1.8.2022. Öldrunardeildin á Hvammstanga er ætluð fyrir einstaklinga í hjúkrunar- og hvíldarrýmum.
Viðkomandi vinnur undir stjórn hjúkrunarfræðings og eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunar.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við umönnun skjólstæðinga á öldrunardeildinni.
Jákvæðni og góð samskiptahæfni. Snyrtimennska og stundvísi. Góð íslenskukunnátta er skilyrði og að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Sótt er um á www.hve.is eða www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Með umsókn skal fylgja:
Starfshlutfall er 50-90%
Umsóknarfrestur er til og með 01.07.2022
Guðrún Helga Marteinsdóttir - helga.marteinsdottir@hve.is - 4321300
Vilborg Lárusdóttir - vilborg.larusdottir@hve.is - 4321000
Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga
Kt. 541292-2419
S. 419 4550