HAUSTDAGUR FERÐAÞJÓNUSTUNNAR Á NORÐURLANDI VESTRA 2019

ÓRÁÐSTEFNA Á HÓTEL LAUGARBAKKA
 þriðjudaginn 12. Nóvember 2019  klukkan 13 - 16
Súpa og spjall  frá klukkan 12:15

Óráðstefna er vestur-húnvetnska þýðingin á engilsaxneska hugtakinu „unconference“ eða „Barcamp“  eins og þetta er kallað á meginlandinu. Og hvað er málið ? Jú, fundarefnið verður til í höndunum á ykkur þátttakendunum, en auðvitað verða allir með réttu ráði, því útkoman skiptir okkur jú öll máli. 


Og svona rúllar þetta:

  1. SKYNDIKYNNINGAR
    (hver þátttakandi kynnir sig: Nafn, fyrirtæki (gjarna með eins og þremur „hashtöggum“ (eitt fyrir sig, eitt fyrir fyirtækið og eitt fyrir Norðurland vestra)
    OG
    INNGANGUR  (fyrirkomulag útskýrt og óráðsíumálefni borin upp til atkvæða og síuð út..)
  2. ÓRÁÐSSÍA nr.1.     
  3. ÓRÁÐSSÍA nr. 2   
  4. Kaffipása
  5. ÓRÁÐSSÍA nr.  3
  6. PEPP FYRIR HEIMFERÐ FRÁ EINUM RÁÐAGÓÐUM  AÐ SUNNAN   

 

Í hverri óráðssíu verður krufinn málaflokkur sem þið teljið að skipti máli fyrir ferðaþjónustuna á Norðurlandi vestra en fjöldi málefna/hópa og fjöldi í hóp ráðast af þátttakendafjölda.   Málefni má stinga upp á við skráningu eða á staðnum og þau eru svo borin upp til atkvæða.

 

 

Við hvetjum sem flesta til að koma og taka virkan þátt í skemmtilegum vettvangi !  Skráning er  hér  til  mánudagsins 11.11. 2019

 

Ferðamálafélögin á Norðurlandi vestra og SSNV