Viðskiptahraðall fyrir nýjar hugmyndir og fyrirtæki í ferðaþjónustu

Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall sem er sniðinn að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.

Ár hvert eru tíu fyrirtæki valin til þátttöku. Þau fá aðgang að fullbúnu skrifstofurými meðan á verkefninu stendur og gefst kostur á að njóta fræðslu og þjálfunar og þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila á sviði ferðaþjónustu og annarra sérfræðinga og stjórnenda þeim að kostnaðarlausu.

 

Hraðallinn hefst 15. janúar og fer fram í Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 11. desember og sækja má um á vefsíðu verkefnisins www.startuptourism.is

Bakhjarlar Startup Tourism eru Isavia, Íslandsbanki, Bláa Lónið og Vodafone. Icelandic Startups sér um framkvæmd verkefnisins í samstarfi við Íslenska ferðaklasann.

Markmið Startup Tourism

•Hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu í sínum víðasta skilningi
•Styrkja stoðir nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu
•Fjölga afþreyingarmöguleikum utan höfuðborgarsvæðisins
•Stuðla að dreifingu ferðamanna víðs vegar um landið, allan ársins hring
•Styrkja innviði ferðaþjónustunnar

 

Frekari upplýsingar má nálgast hér og hér.