Vantar þig aðstoð?

Vantar þig aðstoð við að gera styrkumsókn?

Þarftu að gera rekstrar- eða viðskiptaáætlun og vantar leiðbeiningar og aðstoð varðandi það?

Ertu með hugmynd sem þig langar að hrinda í framkvæmd en veist ekki alveg hvernig?

Ertu með hugmynd og vilt athuga hvort að hún passar inn í einhvern styrkjaflokk sem er í boði?

Ætlarðu að stofna fyrirtæki en þarft aðstoð við að fara í gegnum eyðublaðaflóruna?

 

Starfsmenn SSNV veita ráðgjöf og ýmsa aðstoð til frumkvöðla, einstaklinga og fyrirtækja sem eru starfandi á svæðinu eða hyggja á rekstur. Hafðu samband við næsta ráðgjafa til að bóka tíma, það kostar ekkert. Þjónustan er í boði sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.