Umsagnir nú birtar á heimasíðu SSNV

Samtökunum berast reglulega umsagnarbeiðnir um hin ýmsu þingmál, frumvörp til laga og þingsályktunartillögur. Jafnframt er fylgst grannt með málum í samráðsgátt stjórnvalda og veittar umsagnir um þá mál sem landshlutann varðar. Allar umsagnir eru birtar á vef alþingis og í samráðsgátt en nú hefur til hægðarauka verið sett upp svæði á heimasíðu SSNV þar sem umsagnir stjórnar samtakanna verða framvegis birtar. 

Umsagnirnar er að finna hér.