Taktu þátt í að móta framtíð Norðurlands vestra

Nú stendur yfir mótun nýrrar sóknaráætlunar Norðurlands vestra þar sem mörkuð verður stefna fyrir landshlutann til næstu fjögurra ára. Samhliða þeirri vinnu er unnið að sviðsmyndagreiningu fyrir atvinnulíf landshlutans til lengri tíma. Samið var við KPMG um framkvæmd vinnunar.

Í tengslum við hana hefur verið sett upp stutt netkönnun þar sem íbúum og öðrum áhugasömum gefst tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri varðandi atvinnulíf í landshlutanum. Niðurstaða könnunarinnar verður innlegg í vinnuna við mótun Sóknaráætlunar Norðurlands vestra.

Slóð inn á könnunina er hér: https://soknaraaetlun-2040.questionpro.com/

Könnunin er opin öllum íbúum á Norðurlandi vestra og öðrum áhugasömum og verður hægt að svara til og með 17. júní. Aðeins tekur nokkrar mínútur að svara könnuninni. Svör eru ekki rekjanleg og koma ekki inn á borð SSNV nema í formi samantektar þar sem úrvinnslan fer alfarið fram hjá KPMG.

Í vinnu við gerð nýrrar sóknaráætlunar er mikil áhersla lögð á samráð við íbúa. Haldnir verða opnir vinnufundir í lok ágúst og byrjun september auk þess sem áætlunin sjálf fer í umsagnarferli á heimasíðu samtakanna með haustinu. Dagsetningar funda og nánara fyrirkomulag verður auglýst rækilega þegar þar að kemur.