Tækniþróunarsjóður - umsóknarfrestir

Næsti umsóknarfrestur fyrir fyrirtækjastyrki Tækniþróunarsjóðs - Vöxtur, Sprettur, Sproti og Markaðsstyrkur - er 15. september kl. 16:00.

Styrkirnir eru ætlaðir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Vöxtur er ætlaður til að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Sprettur er öndvegisstyrkur innan Vaxtar. Vöxtur og Sprettur eru styrkir sem ætlaðir eru fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Sproti er ætlaður til að styðja við verkefni á byrjunarstigi, ung nýsköpunarfyrirtæki og frumkvöðla. Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári. Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.

 

Nánari upplýsingar um sjóðina má nálgast hér.