SSNV úthlutar tæpum 85 milljónum í atvinnu- og menningarstyrki


Í heild bárust 150 umsóknir þar sem óskað var eftir 200 milljónum kr. í styrki. Úthlutað var styrkjum til 90 verkefna.

Fyrri úthlutun ársins fór fram í febrúar sl. en þá var úthlutað um 66 millj. kr. Seinni úthlutun var í maí og þá var úthlutað 18,5 millj. kr.

Alls var tæpum 50 millj. kr. úthlutað til atvinnuþróunar og nýsköpunar og tæpum 35 millj. kr. til menningarmála. Hæsti styrkurinn nam 5,2 millj. kr. en sá lægsti var 100 þús. kr.

Verkefnin sem voru styrkt eru mjög fjölbreytt. Mörg verkefni tengjast ferðaþjónustu, önnur framleiðslu á fæðubótarefnum, markaðssetningu á margskonar vörum, stofnun brúðuleikhúss, konfektgerð, tónleikum, leiklist, hönnun og handverki, bókaútgáfu, starfsemi safna og setra, kvikmyndagerð, ræktun matjurta o.s.frv.

Upplýsingar um styrkhafa er að finna á heimasíðu SSNV, www.ssnv.is.