SSNV tekur þátt í alþjóðlegu samstarfsverkefni

SSNV er þátttakandi í alþjóðlegu samstarfsverkefni sem hlaut á dögunum styrk úr sjóði Norðurslóðaverkefna. Verkefninu er ætlað að taka á ýmsum áskorunum sem fyrirtæki á jaðarsvæðum kunna jafnan að glíma við, svo sem smæð markaðar, fjarlægð frá markaði og einangrun.

Markmið samstarfsins er m.a. að þróa nýjungar í stafrænum markaðs- og söluhugbúnaði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og aðstoða þau við að nýta sér stafræna möguleika. Þá er enn fremur stefnt að því að þátttaka í verkefninu stuðli að alþjóðlegum vexti fyrirtækja sem byggja á líffræðilegum auðlindum svæðisins; fisk, landbúnaði, skógrækt og öðrum tengdum iðnaði. Aðrir þátttakendur í verkefninu eru WESTBIC og ICBAN (atvinnuþróunarfélög), Udaras na Gaeltachta (landshlutasamtök), University of Ulster og Karelia University (háskólar í Norður-Írlandi og Finnlandi).

Udaras na Gaeltachta leiðir verkefnið og Sveinbjörg Pétursdóttir, atvinnuráðgjafi, er verkefnisstjóri verkefnisins fyrir SSNV.