SSNV og N4 skrifa undir samstarfssamning

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og sjónvarpsstöðin N4 hafa gengið frá samstarfssamningi um birtingu efnis frá starfssvæði samtakanna í helstu þáttum sjónvarpsstöðvarinnar á árinu.

Samstarf samtakanna og N4 hefur nú varað óslitið frá árinu 2013 og hefur sjónvarpsstöðin framleitt fjölda vandaðra innslaga um það sem efst er á baugi í landshlutanum hverju sinni til birtinga í dagskrá sinni. Til viðbótar við þessa samninga var hluta þess fjármagns sem varið var til verkefna til að bregðast við aðstæðum vegna Covid-19 á árinu 2020 sett í framleiðslu þáttanna Uppskrift að góðum degi á Norðurlandi vestra þar sem kynnt var fjölbreytt úrval afþreyingar, gistingar og veitingastaða í landshlutanum auk náttúru og mannlífs svæðisins.

Upphaf samstarfsins má rekja til niðurstöðu könnunar sem unnin var af Gallup þar sem í ljós kom að verulega hallaði á umfjöllun um mannlíf og menningu á Norðurlandi vestra í fjölmiðlum. Einnig þótti mikilvægt að skrásetja með þessum hætti mannlíf á svæðinu, eiga viðtöl við fólk um störf þess og verkefni og þannig  safna aðgengilegu myndefni af íbúum, staðháttum og þróun landshlutans. Ekki er óvarlegt að á þeim árum sem samstarfið hefur varað hafi á bilinu 2-3000 manns af starfssvæðinu komið fram í þáttunum. Heimildagildi þessa efnis er því ótvírætt.

Könnun sem gerð var meðal þeirra sem komið hafa fram í þáttunum leiddi í ljós 90% ánægju þeirra og svipað hlutfall taldi að umfjöllunin hefði skilað aukinni þekkingu um starfsemi fyrirtækisins og/eða stofnunarinnar. Byggt á  þessum niðurstöðum var auðvelt að taka ákvörðun um að halda samstarfinu við N4 áfram.  Þá hefur einnig komið í ljós að umfjöllunin á N4 vakti áhuga annarra fjölmiðla á svæðinu og fór í kjölfarið að bera meira á RÚV, Stöð2, Morgunblaðinu og Vísi á svæðinu.  

 

Frá upphafi samstarfsins hafa verið unnin í það minnsta 500 innslög í þáttinn Að norðan. Auk þess hafa verið gerðir stakir þættir svo sem viðtöl í Föstudagsþættinum, Landsbyggðir, Þegar, Ungt fólk og krabbamein, Taktíkin að ógleymdum fyrrnefndum þáttum, Uppskrift að góðum degi og þáttaröðinni Óvissuferð á Norðurlandi vestra sem unnin var 2014 og fjallaði um ferðaþjónustu á svæðinu.

Samstarf SSNV og N4 er mikilvægur liður í kynningu Norðurlands vestra bæði út á við og einnig fyrir íbúum landshlutans. Með því má segja að fáir aðrir landshlutar geti í dag státað af viðlíka fjölda þátta og viðtala sem brátt ná yfir 9 ára tímabil.

Það skal tekið fram að aðkomu SSNV að stuðningi við þáttagerð hefur ávallt verið getið skv. fjölmiðlalögum.