Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Rannsóknasjóði fyrir styrkárið 2018

Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum úr Rannsóknasjóði fyrir styrkárið 2018. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2017 kl. 16:00.

Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknatengt framhaldsnám á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknaverkefni einstaklinga, rannsóknahópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja.

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3 frá 2003 með áorðnum breytingum

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2018 áður en hafist er handa við gerð umsóknar.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Umsóknir og umsóknargögn skulu vera á ensku.

Nánari upplýsingar og aðgangur að rafrænu umsóknarkerfi á vefsíðu Rannsóknasjóðs.