Ný húsakynni SSNV á Hvammstanga

Samtökin hafa nú flutt starfsemi skrifstofunnar á Hvammstanga í húsnæði Landsbankans, höfðabraut 6. Mælst er með því að hafa samband og bóka tíma í viðtal/ráðgjöf. Nánari upplýsingar um starfsfólk SSNV og netföng má finna hér.

Á næstunni verður opnað skrifstofusetur í sama rými. Þar verður boðið upp á skrifstofuaðstöðu fyrir þá sem vinna störf án staðsetningar og aðra þá sem þurfa á vinnuaðstöðu að halda. Er um að ræða áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra sem unnið er með stuðningi frá Landsbankanum en afgreiðsla bankans verður áfram rekin með óbreyttu sniði í húsnæðinu. Verið er að gera smávægilegar breytingar á rýminu áður en hægt er að opna aðstöðuna en hún verður öll eins og best verður á kosið, rúmgóð og björt.