Mikill áhugi á Hæfnihringjum á netinu

Mikill áhugi er á Hæfnihringjum á netinu - stuðningi fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni. Alls hafa 25 konur um allt land skráð sig til leiks og verða því keyrðir 3 hópar. Hópur 1 verður keyrður á þriðjudögum, hópur 2 á miðvikudögum og hópur 3 á fimmtudögum. Vonir standa til um að geta farið af stað með nýja hópa eftir áramót.

Hæfnihringir eru byggðir á aðferðarfræði, sem kallast aðgerðarnám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm. Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur til að komast yfir hindranir með því að a) styrkja hæfni og færni þeirra, b) veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar og c) að efla tengslanet þeirra. Hringjunum er stýrt af leiðbeinanda í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit.

Fyrsti netfundurinn er þriðjudaginn 27. október kl. 14:30. Lagt er upp með 4-5 fundi með tveggja vikna millibili, hver fundur er ca 1,5 klst.

Hæfnihringirnir eru samstarfsverkefni nokkurra landshlutasamtaka/atvinnuþróunarfélaga, en auk okkar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, koma kollegar okkar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, Austurbrú, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Vestfjarðarstofu að verkefninu. 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Sveinbjörgu Rut Pétursdóttur, atvinnuráðgjafa SSNV, á netfanginu sveinbjorg@ssnv.is eða í síma 866-5390.