Lóan er komin !

(c) Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
(c) Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.  

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.  

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og skal þeim skilað rafrænt á eyðublaðavef stjórnarráðsins
Umsóknarfrestur er til 22. mars 2021.

Við hvetjum áhugasama aðila á starfssvæði SSNV til að kynna sér málið og minnum á að atvinnuráðgjafar okkar eru ávalt til þjónustu reiðubúnir.