Kynningarfundur um endurskoðun byggðakvóta

Starfshópur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um endurskoðun byggðakvótakerfisins boðar til opins kynningarfundar í Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudaginn 7. júlí kl. 14-16. 

 

Sveitarstjórnarfólk og hagsmunaaðilar eru sérstaklega hvött til að mæta. Tillögur starfshópsins verða birtar opinberlega viku síðar, en frestur til að skila athugasemdum við tillögurnar rennur út í lok júlí.