Kortavefsjá SSNV

SSNV og Hvítárós ehf. hafa gert með sér þjónustusamning um uppfærslur og viðhald á gagnagrunni sem fyrirtækið hefur sett upp fyrir landshlutasamtökin. Gagnagrunnurinn er aðgengilegur á heimasíðu samtakanna undir flipanum Kortavefsjá SSNV. Gagnagrunnurinn inniheldur upplýsingar um innviði sveitarfélaganna sem verða þarna aðgengilegar á einum stað. Tilgangur gagnagrunnsins er meðal annars að veita innviðaupplýsingar um svæðið sem nýtast væntanlegum fjárfestum.

Kortavefsjáin er í sífelldri vinnu og er tekið á móti ábendingum um það sem betur má fara eða upplýsingar sem vantar á ssnv@ssnv.is.