Í fréttum er þetta helst – Janúar 2021

Á árinu 2021 munum við taka mánaðarlega saman lista yfir helstu verkefni sem við erum að vinna að hverju sinni. Hér er kominn listinn yfir janúar 2021. Til viðbótar við þau verkefni sem þarna koma fram var unnið að hefðbundinni atvinnuráðgjöf ásamt stuðningi við gerð ýmissa styrkumsókna, unnið var að verkefnum sem þegar voru komin af stað svo sem Ratsjáin fyrir ferðaþjónustu og tengd fyrirtæki og Evrópuverkefnið Digi2Market. Einnig var sem fyrr unnið að gerð umsagna um þingmál, tekið þátt í hinum ýmsu fundum um hagsmunamál sveitarfélaganna á starfssvæðinu, o.s.frv.