Hvað eigum við að gera?

SSNV stendur fyrir ráðstefnu um umhverfismál 28. maí kl. 13:00 á Húnavöllum. Þar mun Stefán Gíslason kynna fyrstu niðurstöður greiningar á kolefnisspori landshlutans sem er hluti af áhersluverkefni áranna 2018 og 2019. Auk erindis Stefáns verða flutt erindi um heimsmarkmiðin, tengingu heimsmarkmiða inn í stefnumótun sveitarfélaga og landsskipulagsstefnu, matarsóun, reynslusögu fjölskyldu af flokkun og umhverfisvitund ásamt fleiru. Nánari dagskrá verður send út innan tíðar.

Allir eru velkomnir en ráðstefnunni verður einnig streymt í gegnum facebook síðu samtakanna.